28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Sveinn Björnsson:

Jeg er skrifari strandferðanefndarinnar, og ætti því að hafa framsögu að brtt. hennar og öðrum tillögum við 13. gr. C. En eftir samkomulagi milli mín og formanns nefndarinnar, höfum við skift með okkur verkum þannig, að hann hefir framsögu að þeim brtt., er snerta strandferðirnar, þar sem þar er um samninga að ræða við fjelag, er jeg er formaður í. Aftur á móti mun jeg minnast á brtt. þær, er snerta flóabátana. En til þess að halda rjettri röð, þá skal jeg leyfa mjer að minnast áður á aðra brtt., sem jeg er líka framsögumaður að. Hún er á þgskj. 597, og er frá meiri hluta bannlaganefndarinnar. Þessi brtt. fer fram á það, að veittar sjeu í fjárlögunum 5000 kr. hvort árið, til aukins lögreglueftirlits með því, að bannlögin sjeu ekki brotin. Eins og kunnugt er, var í Ed. samþykt frumv., er gjörði talsverðar breytingar á bannlögunum. Það frumv. er nú í nefnd hjer í þessari deild. Nefndin hefir ekki getað fylgst að, en meiri hluti hennar vill þó bæta úr göllum þeim, sem á bannlögunum eru. Þessi brtt. fer í sömu átt. Nefndin lítur svo á, að eitt af aðalskilyrðunum til þess, að lögin komi að haldi, sje betra lögreglueftirlit, sjerstaklega með skipum þeim, er frá útlöndum koma. Einn nefndarmanna er háttv. 2. þm. Rvk. (J.M.), lögreglustjóri á þeim stað, þar sem best tækifæri hefir verið til þess að athuga, hvernig lögin hafa verkað. Hann er þeirrar skoðunar, að mikil bót mundi verða að því, ef fje væri veitt til þess, að hægt væri að hafa vörð úti í skipum, er þau liggja á höfnum, sjerstaklega millilandaskipunum. Slíkir verðir gætu komið í veg fyrir það, að flutt væri á land áfengi, svo að nokkru næmi, ekki að eins í Reykjavík, heldur flestum hinum stærri kaupstöðum.

Jeg vænti þess, að deildin sje mjer sammála um það, að það er ekki vansalaust af þinginu, ef það gjörir enga tilraun til þess, að sjá um, að þessi lög sjeu annað og meira en pappírslög, sem menn jafnvel stæra sig af að brjóta.

Þá kem jeg að brtt. við 13. gr. C, að undarskildum þeim, er. snerta strandferðirnar, og brtt. háttv. þm. S.-Þing. (P. J.). Það er óhjákvæmilegt, að gefa dálítið yfirlit yfir þennan annan þátt samgöngumálanna, strandferðirnar. Jeg get í þessu efni hugsað mjer tvær stefnur. Önnur er sú, að strandferðaskipin komi inn á hverja vík og höfn á landinu, sem hægt er. Þá er minni þörf á flóabátum. Þeirra þarf ekki við, nema á þeim stöðum, er strandferðaskipin geta ekki komist til. Hin stefnan er sú, að skipin komi að eins við á fáum höfnum, en við það eykst þörfin á flóabátum.

Verði tillögur strandferðanefndar samþyktar, má búast við því, að strandferðirnar verði fullkomnari en nokkru sinni áður. Skipin koma við á fleiri höfnum en áður, og fleiri hjeruð hafa bein not af þeim. Þess vegna hefir nefndin ætlað minna fje til flóabáta en hingað til hefir verið veitt.

Í sambandi við þetta vil jeg vekja athygli háttv. þm. á fylgiskjali 2 með nefndarálitinu. Það er skýrsla samgöngumálaráðunautarins, og hefir strandferðanefndin bygt tillögur sínar á henni. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, að minni þörf sje á að styrkja flóabáta en hingað til, vegna þess, hve strandferðirnar verði góðar á komandi ári. Og hann fer í þessu efni lengra en strandferðanefndin. Jeg vænti þess, að háttv. þm. hafi lesið skýrsluna og nefndarálitið, og tel því óþarft að vera að hafa alt það upp aftur, er þar stendur. Þó skal jeg leyfa mjer að minnast á eitt aðalundir. stöðuatriði nefndarinnar í sambandi við eitt atriði, er í nefndarálitinu stendur. Nefndin hafði farið þess á leit við útgjörðarmenn flóabáta, að þeir ljetu henni í tje skýrslur um tekjur af bátunum, flutninga þeirra, farþega og flutningsgjald o. s. frv. Tvö fjelög hafa gjört þetta, og eru skýrslur þeirra prentaðar sem fylgiskjöl með nefndarálitinu. Það þarf ekki að athuga skýrslurnar lengi, til þess að sjá milli hvaða hafna bátarnir hafa mest að gjöra. Milli Víkur og Vestmannaeyja er t. d. talsverður flutningur, og þess vegna vel varið því fje, er veitt er til að styrkja bát milli þeirra hafna. En milli flestra annara viðkomustaða þess báts nemur flutningurinn nokkrum aurum árið í kring. Því verður ekki neitað, að það virðist heldur slæmur búskapur að veita stórfje úr landssjóði til óþarfa ferða milli Vestmannaeyja og vestur á bóginn. Milli Stokkseyrar og Reykjavíkur er flutningsgjaldið eftir þrjár ferðir, sem farnar eru árlega, 75 aurar. Þetta er svo hlægilegt, að það þarf ekki að útlista það með orðum, hve tilgangslaust er að styrkja slíkar ferðir. Milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur nemur gjaldið kr. 37,05. Þá vil jeg vekja eftirtekt háttv. þm. á skýrslum flóabátsins Ingólfs. Hann virðist ekki hafa mikið að gjöra á Stokkseyri; flutningsgjaldið þangað og þaðan alt árið 29 kr.; ekki heldur á Vogavík, þar er það 48 kr., Akra 99 kr. og Straumfjörð 83 kr. Þörfin er ekki svo mikil á þessum slóðum, að rjett sje að kasta út þúsundum króna, til þess að halda ferðunum við.

Um styrkinn til einstakra báta skal jeg geta þess, að samgöngumálaráðunauturinn hafði lagt það til, að styrkurinn til Faxaflóabátsins yrði færður niður í 8000 kr. Tekjuafgangur fjelagsins hafði verið svo mikill síðastliðið ár, að honum virtist ástæðulaust að veita jafnmikið fje og áður. En strandferðanefndinni barst brjef frá fjelaginu, þar sem það segir, í fám orðum, að fjelagið muni ekki sætta sig við það, að styrkurinn sje færður niður, það muni þá hætta að halda uppi vetrarferðum. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að rjett mundi vera að veita fjelaginu 10 þús. kr. árlega. Þótt hún vilji ekki styrkja fyrirtæki að óþörfu, þá álítur hún samt varasamt að fara langt í því, að lækka styrkinn mikið þegar á fyrsta ári, er fyrirtækin eru farin að borga sig vel.

Viðvíkjandi Breiðafjarðarbátnum skal jeg geta þess, að þar vestra hefir nýlega verið stofnað hlutafjelag, er ætlar sjer að halda uppi samgöngum um Breiðafjörð allan og Snæfellsnes sunnanvert sömuleiðis. Þetta fjelag ætlaði að byggja skip í þessum tilgangi og hefir sent þinginu uppdrætti, áætlun um tekjur og gjöld og kostnaðinn við skipa kaupin.

Áætlanir þessar eru bygðar á minna skipi en því, sem nú er áformað. En á þessum áætlunum bygðu nefndirnar. Nú eru gefnar þær upplýsingar, að áformað sje að hafa stærra skip. Við það eykst útgjörðarkostnaðurinn, og fjelagið telur sig því þurfa hærri styrk.

Þessar upplýsingar komu fram á síðustu stundu, og á fundi, sem nefndin átti í gær, voru ekki allir viðstaddir. Jeg get því ekki fyrir nefndarinnar hönd lýst yfir því, að hún fallist á brtt. á þgskj. 618.

Þá sný jeg mjer að Ísafjarðarbátnum. Honum var ætlað að sigla á Húnaflóa, en það kom í ljós, að hann hafði ekkert þangað að gjöra, og er því óþarft að ætla þeim bát að sigla fyrir Horn, sjerstaklega af því, að strandferðirnar verða bættar.

Tillaga nefndarinnar um lækkun á styrk til Eyjafjarðarbátsins er bygð aðallega á því, að með bættum strandferðum er ónauðsynlegt, að báturinn gangi með öllu Norðurlandi. Strandferðaskipið og báturinn mundu þá elta hvort annað og kroppa sína ögnina á hverjum stað, og árangurinn yrði sá, að hvorugt borgaði sig. Hins vegar hefir nefndinni þótt rjett að leggja til að styrkja ferðir um Eyjafjörð sjálfan, þar með talinn Siglufjörður, og á Húsavík og Flatey, eins og gjört er grein fyrir í áliti nefndarinnar.

Þá kem jeg að ferðunum milli Vestmannaeyja og Stokkseyrar. Þar er styrkurinn samkvæmt tillögu samgöngumálaráðunautarins ætlaður 5000 kr. Þess skal getið, að samkvæmt ósk hv. þm. V.-Sk. (S. E.), þá er gjört ráð fyrir því, að styrkurinn verði tvískiftur sem sje til ferða milli Víkur og Vestmannaeyja og Stokkseyrar og Vestmannaeyja, ef hjeraðastjórnirnar koma sjer ekki saman um annað.

Um aðrar styrktillögur eru skiftar skoðanir í nefndinni, og það, sem jeg segi hjer, segi jeg fyrir hönd meiri hluta nefndarinnar. Komið hefir fram erindi til nefndarinnar frá háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J ) um 800 kr. hækkun til bátsins þar. En þar er jafnframt tekið fram, að ef strandferðir komist í gott lag, þá þurfi báturinn ekki að fara margar ferðir til Djúpavogs. Nú með því, að nefndin ætlast til, að strandferðirnar verði bættar, þá þykir henni ekki ástæða til að taka þetta erindi til greina.

Á þgskj. 622 eru ný skilyrði, sem nefndin ætlast til, að tekin verði upp í stað hinna gömlu athugasemda. Jeg þarf ekki að fjölyrða um þau; þau eru sumpart runnin frá samgöngumálaráðunautinum, en að sumu leyti frá nefndinni sjálfri.

Á þgskj. 623 er brtt. frá háttv. 1. þm. G. K. (B. K.), sem nefndin hefir ekki tekið til athugunar; en jeg þykist þó mega fullyrða, að nefndin muni ekki gjöra þá till. að kappsmáli.

Um tillögu háttv. þm. Dal. (B. J ) á þgskj. 528 er það eitt að segja, að nefndin er henni samþykk.

Þá er brtt. frá háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) um að fella niður styrk til bátsins upp Hvítá. Meiri hluti nefndarinnar er á því, að þessar ferðir ættu að halda áfram, jafnvel þótt upplýsingar hafi komið fram um það, að ekki muni eins mikil þörf á að styrkja þenna bát og. sumir hafa haldið fram.

Þá skal jeg snúa mjer að nokkrum öðrum brtt.

Jeg hefi með háttv. Í. þm. G.-K. (B. K.) farið fram á það, að Theódóri Árnasyni verði veittur styrkur til að fullkomna sig í fiðluspili. Þessi maður er víst flestum eða öllum þingmönnum kunnur, með því að hann hefir leikið á fiðlu í veitingahúsi einu hjer í bænum í sumar. Hann hefir lagt stund á fiðluspil um nokkur ár og þykir hafa góða hæfileika og vera ástundunarsamur, og hefir bestu meðmæli söngfróðra og söngelskandi manna. Með erindi hans um styrkinn fylgja meðmæli frá Árna Thorsteinsson og Sigfúsi Einarssyni, og segja þeir meðal annars, að hann sje ágætlega ástundunarsamur og námfús og sje sjerstaklega gott efni í fiðluleikara. Frá kennara hans í Winnipeg, Hall að nafni, liggja og fyrir meðmæli, sem segja, að Theódór hafi spilað þar vestra fyrir söngelskandi fólki og fengið hinar bestu undirtektir, og telur hann, að Theódór muni komast langt áleiðis. Það er ekki einskis vert að koma hjer upp fiðluspili og styrkja viðleitni manna í þá átt. Það er öllum kunnugt, sem lesið hafa sögur norsku skáldanna, hvað fiðlan hefir átt mikinn þátt í að koma einkennilegum blæ á hið norska þjóðlíf. — Jeg vona því, að háttv. deild samþykki þessa tillögu.

Á þgskj. 594 fer jeg fram á styrk til kolanámurannsókna á Vestfjörðum, að því tilskildu, að þær fari fram undir umsjón námuverkfræðings. Fyrir Alþingi hafa legið tvö erindi, annað frá Námufjelagi Ísland, hitt frá Guðmundi Guðmundssyni, sem bæði fara fram á styrk eða lán til kolarannsókna. Það eru mörg ár síðan fyrst var farið að grafa eftir kolum hjer á landi. Ýmsar tilraunir hafa verið gjörðar til að rannsaka þau og gæði þeirra. Námufjelagið hefir eytt stórfje í að rannsaka þetta, en fyrirhöfnin hefir ekki borið þann árangur, að jafnist á við peningana, sem rannsóknirnar hafa kostað. Nú á síðustu árum hefir Guðmundur Guðmundsson rannsakað kolanámur hjer og fundið kol í Skorarfjalli, og eru það hin bestu sýnishorn, sem fundist hafa, eins og þingmenn hafa getað sjeð á lestrarsalnum. Þau hafa verið reynd hjer víða, t. d. hjer í þinghúsinu, og reynst brenna vel. Jeg álít, að þetta spursmál sje svo stórt og þýðingarmikið, að ekki sje vansalaust fyrir löggjafarvaldið að gjöra ekki tilraun til að rannsaka til hlítar, hvort hjer sje unt að afla kola, sem nægileg væru til eldsneytis í landinu, og ef til vill til skipa. Og þá þykir mjer ekki rjett, að horft sje í nokkrar þúsundir, þegar svo mikið liggur við. En áherslan liggur á því, að rannsóknin fari fram undir umsjón sjerfræðings, sem að sjálfsögðu þarf þá að hafa öll nauðsynleg tæki, einkanlega námubor. — Þessi erindi hafa legið fyrir fjárlaganefndinni, en hún ekki sjeð sjer fært að sinna þeim. En ef þessi tillaga verður samþykt, þá er stjórninni þar með að sjálfsögðu heimiluð ráðstöfun á styrknum, sem ef til vill gæti farið fram í samráði við báða umsækjendurna.

Loks á jeg brtt. á þgskj. 595 um 20 þús. kr. lán til Hjálpræðishersins, til að koma upp gistihúsi og sjómannahæli hjer í Reykjavík. Fjárlaganefndin, sem annars er svo ör á lánveitingar, sá sjer ekki fært að sinna þessari lánbeiðni, þótt hún sje engu minna nauðsynjamál en margt það, sem tekið hefir verið til greina. Það er gjört ráð fyrir því, að þetta hús Hjálpræðishersins muni kosta 50–60 þús. kr. Jeg þarf ekki að fara mörgum orðum um þessa brtt. Það er öllum kunnugt, að hjer í bæ vantar gistihús handa fátækum mönnum, því að gistihæli það, sem Hjálpræðisherinn hefir haldið uppi hingað til, er orðið mjög ljelegt vegna húsakynnanna; en nú hefir herinn hugsað sjer að breyta þessu til batnaðar, og ekki er það þýðingarminna, að til er ætlast, að sett verði einnig upp sjómannahæli, bæði handa innlendum og útlendum sjómönnum, svo að þeir geti haft þar bækistöð sína.

Jeg vona, að háttv. deild taki þessa brtt. til greina, sjerstaklega þar sem tekið hefir verið tillit til allra lánbeiðna, sem fram hafa komið nú, nema þessarar einu; þess vegna vænti jeg, að henni verði ekki gjört lægra undir höfði en hinum.