28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Þorleifur Jónsson:

Jeg á hjer eina örlitla brtt. við fjárlögin á þgskj. 582. Hún fer fram á að hækka styrkinn til mótorbátsferða í Austur-Skaftafellssýslu úr 400 kr. upp í 800 kr. Nokkur undanfarin ár hefir þessi styrkur, 400 kr. á ári, verið veittur til að halda uppi þessum ferðum. Báturinn hefir gengið á milli Hornafjarðar og Papaóss aðallega, en svo hafa auk þess verið farnar 1–2 ferðir til Djúpavogs. Það hefir verið mikil tregða á því, að nokkur fengist til að taka þessar ferðir að sjer fyrir svo lítinn styrk, einkum þó ferðirnar til Djúpavogs. Undanfarin ár hefir kaupmaðurinn í Hornafirði haft þessar ferðir á hendi. Hann hafði í förum mótorbát hvort sem var, og gat þess vegna gengið að því, að taka ferðirnar að sjer fyrir þennan litla styrk. En í vor, sem leið, gat hann ekki eða vildi ekki hafa þær á hendi lengur. Þá leitaði sýslan fyrir sjer austur á bóginn til Djúpavogs, en þegar jeg fór að heiman í vor, var enginn fenginn til að halda uppi þessum ferðum. Það svar kom frá mótorbátaeigendum á Djúpavogi, að styrkurinn væri of lágur, og kváðust þeir með engu móti geta unnið það fyrir, að taka ferðirnar að sjer fyrir þennan styrk. Jeg veit síðan ekki, hvort nokkuð hefir rætst úr þessu eftir að jeg fór.

Út úr þessum vandrænum fór sýslunefndin þess á leit á fundi í apríl, að landsstjórnin veitti 2000 kr. styrk til motorbátsferða í Austur-Skaftafellssýslu. Jeg hafði skrifað fjárlaganefndinni um þetta mál og mælst til, að nefndin legði það til, að styrkurinn yrði hækkaður um helming. Það er sama tillagan, sem nú liggur hjer fyrir háttv. deild.

Það er mitt álit, að ef bærilegar strandferðir eru í Hornafirði, þá þurfi styrkurinn ekki að vera eins hár og sýslunefndin fór fram á. Hún fór fram á þennan styrk, 2000 kr. á ári, einkum með tilliti til vondra samgangna í Hornafirði undanfarin ár. En jeg vænti þess, að strandferðunum yrði kipt í betra horf, og fór því að eins fram á, að styrkurinn yrði hækkaður um helming. Ef nokkurn veginn bærilegar strandferðir eru á þessum slóðum, er minni þörf á mörgum ferðum milli Djúpavogs og Hornafjarðar. Við þetta miðaði jeg, og hefi því að eins farið fram á 800 kr. styrk, enda þótt sýslunefndin færi fram á 2000 kr. Jeg þóttist vita, að með þeim sparnaðaranda, sem ríkti hjer á þinginu, væri rjett að slá heldur af þeim kröfum, sem hjeraðið hafði gjört.

Jeg veit ekki hverja skoðun fjárlaganefndin hefir á þessu, en jeg býst við, að það yrði erfitt að sanna, að það sje ekki þörf á þessum styrk. Það, sem háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.) sagði á móti þessu máli, var ekki annað en ljelegar málaflutningsmannsbrellur. Hann sagði, að jeg mælti sjálfur á móti þessum styrk í brjefi mínu. Úr því að einstök orð eru rifin. þannig út úr rjettu samhengi og snúið út úr þeim, verð jeg að biðja hæstv. forseta um leyfi til að lesa alt brjefið. Það hljóðar svo:

»Á síðasta sýslufundi í Austur-Skaftafellssýslu var þess farið á leit við fjárveitingarvaldið, að styrkur til mótorbátaferða í Austur-Skaftafellssýslu sje hækkaður upp í alt að 2000 kr., og málaleitanir um hið sama, komu fram á ýmsum þingmálafundum.

Háttvirtri fjárlaganefnd til leiðbeiningar vil jeg leyfa mjer að fara nokkrum orðum um þetta mál.

Undanfarin ár hefir Þórh. kaupm. Daníelsson í Hornafirði haft bátaferðir þessar á hendi, og hefir mótorbátur gengið margar ferðir milli Hornafjarðar og Papaósa og Hvalnesskróks í Lóni, og síðasta sumarið 2 ferðir milli Hornafjarðar og Djúpavogs, og hafa orðið mjög góð not af ferðum þessum fyrir almenning. En í vor, sem leið, neitaði Þórh. Daníelsson að eiga neitt við þetta lengur, þar eð styrkurinn væri svo lítill, (400 kr.) að hann skaðaðist á ferðunum. Var þá leitað til mótorbátaeigenda á Djúpavogi um það, hvort þeir vildu ekki takast á hendur ferðir þessar, og var svar komið frá þeim, rjett áður en jeg fór að heiman í miðjum júní, að þeir vildu ekki við það eiga fyrir þenna lága styrk. Veit jeg svo eigi, hvort nokkur hefir fengist til að taka ferðirnar að sjer í sumar, en býst varla við að svo verði.

Út af þessu vil jeg leyfa mjer að fara þess á leit við háttv. fjárlaganefnd, að hún hækki eitthvað hinn umrædda styrk til mótorbátaferða í Austur-Skaftafellssýslu, og teldi jeg fyrir mitt leyti mikla bót, ef styrkurinn yrði hækkaðar um helming, eða upp í 800 kr. á ári, því ef strandferðir í Hornafjörð kæmist í þolanlegt lag, líkt og ráðgjört var á síðasta þingi, þá þyrfti báturinn ekki að fara margar ferðir til Djúpavogs, en ferðirnar þangað hleypa kostnaðinum mest fram.

Jeg fjölyrði svo ekki frekar um þetta, en vænti þess, að háttv. fjárlaganefnd taki liðlega í mál þetta«.

Af þessu munu menn geta sjeð, hvort ástæða sje til að segja, að í brjefi mínu sje því mótmælt, að styrkurinn verði hækkaður. Jeg sje ekki, hvernig háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.) fer að finna það út. Mjer liggur við að segja, að það sjeu óhlutvendni, að rifa þannig orð úr rjettu samhengi og leggja í þau þveröfuga meiningu.

Jeg skal svo ekki viðhafa fleiri orð um þetta mál, það er hvort sem er ekkert stórmál, hvorki fyrir hlutaðeigandi hjerað nje fjárveitingarvaldið. En það verður ekki annað sagt með sanni en að sanngjarnt sje að veita þenna styrk, sjerstaklega þegar litið er til hinna erfiðu samgangna á sjó í Austur-Skaftafallssýslu.

Læt jeg svo deildina ráða, hvað hún gjörir í málinu, eftir að hafa heyrt þessar ástæður.