28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (1211)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Matthías Ólafsson:
Jeg skal ekki vera margorður. En jeg á tvær breytingartillögur sjálfur og auk þess eina með öðrum, er jeg vildi fara um örfáum orðum.
Við 2. umræðu fjárlaganna var samþykt 18000 króna tillag til Fiskifjelags Íslands. Jeg gat, eftir atvikum, verið alveg sammála gjörðum fjárlaganefndarinnar um það, að lækka þetta tillag úr 20,000 kr. niður í 18000 kr., eftir því sem nefndin rökstuddi það. En síðan hafa komið fram tilmæli um það, að styrkja kenslu í sjómannafræði á Vesturlandi. Er gjört ráð fyrir, að sá skóli yrði á Ísafirði, fyrir menn, er ætla að takast á hendur skipstjórastöðu á smærri skipum,
Í Ed. hefir fjárlaganefnd samþykt, að Fiskifjelagið sjái um þennan skóla og kostnað þann, er af honum leiðir, og leggur nefndin til, að fjelaginu verði veittar 19000 kr. með því skilyrði, að það annist þessa kenslu. En mjér virðist að þá sje tillagið helst til lágt. Vil jeg því fá tillagið til fjelagsins hækkað upp í 20,000 kr., eins og Fiskifjelagið fór fram á. Jeg hefi átt tal um þetta við háttv. fjárlaganefnd, og virtist mjer hún þessu hlynt, og vona jeg því að hún og háttv. deild sjái sjer fært, að greiða atkvæði með breytingartill. þeirri, sem jeg hefi komið fram með viðvíkjandi þessari hækkun.
Önnur breytingartillagan, sem jeg á, er á þgskj. 549, sem er annars eðlis og óskyld. Hún er um styrk til Hólmfríðar Árnadóttur, til þess að halda uppi kvöldskóla í Reykjavík. Hún hefir verið kennari á Ísafirði og víðar og reynst alstaðar góður kennari. Jeg þekki ekki efnahag hennar, en jeg veit að hún hefir verið í Englandi og kynt sjer kensluaðferðir og skólafyrirkomulag. Hins vegar er mjer það kunnugt, að hún er vel að sjer í enskri tungu, og fleirum þeim námsgreinum, er hún hefir kent hjer í Reykjavík.
Hún hefir undanfarin ár haft kvöldskóla hjer í Reykjavík, og hefir sá skóli reynst vel. Slíkir skólar eru alveg bráðnauðsynlegir, því að þá getur sótt kvenfólk, sem annars vinnur allan daginn, en hefir kvöldstundunum yfir að ráða. Getur þeim tíma naumast verið betur varið til annars.
Hún hefir sótt um 1000 króna styrk í þessu skyni. Meiri hl. fjárlaganefndar sá sjer ekki fært að taka þetta til greina. En af því að jeg er sannfærður um, að mikil þörf er á þessu, hefi jeg komið fram með breytingartillögu þá, er jeg hefi nefnt, og vonast jeg til þess, að háttv. deild samþykki þessa fjárveitingu, því að hún mun óefað að miklu gagni koma.
Þá er þriðja breytingartillagan, er jeg á með öðrum manni, á þgskj. 607.
Eitt af því, sem einna mestan þátt getur átt í því að draga úr slysum, er sundkensla. En sá maður, er mest hefir gjört í þessu efni, er Páll Erlingsson. Í seinni tíð hefir hann fengið Erling son sinn, er aflað hefir sjer frægðar fyrir sund erlendis, sjer til aðstoðar.
Nú er Páll sjálfur orðinn gamall og farinn, og því eigi hægt að búast við því, að hann geti stundað sundkenslu af annari eins elju og meðan hann var upp á sitt hið besta. En til þess að hann geti tekið Erling sjer til aðstoðar, svo að honum sjálfum geti liðið betur og hefði minna að gjöra, höfum við farið fram á í brtt. þessari, að 1200 kr. styrk þeim, sem næsta fjárhagstímabil á að veita Reykjavíkurbæ til sundkenslu, verði breytt í 300 kr. eins og verið hefir, en 1200 kr. styrkur til að halda uppi sundkenslu verði veittur Páli.
Jeg hefi átt tal við Pál um það, hvort hann sæi sjer ekki fært að leiðbeina mönnum úti um land í björgunartilraunum. Mörg slys úti um land eru því einu að kenna, að þó að menn geti fleytt sjer á sundi, þá eru þeir ófærir til að bjarga öðrum. Það kemur t. d. ekki ósjaldan fyrir, að menn, sem detta úti úr bát eða af bryggju, drukna beinlínis af því, að enginn viðstaddra kann björgunarsund. Páil kvaðst vera fús til að gjöra það, sem hann gæti í þessu, en meðan tekjur sínar væru ekki meiri, sæi hann sjer það ekki fært.
Þar sem hjer er um mikið nauðsynjamál að ræða og útgjöld landssjóðs hækka að eins um 300 kr., þótt breytingartillagan verði samþykt, vonast jeg til svo góðs af háttv. deild, að menn greiði henni atkvæði sitt, ekki síst þar sem Páll er alls góðs af okkur maklegur.
Þá kem jeg að brtt. annarra þingmanna. Um þær skal jeg vera fáorður.
Við 2. umr. fjárlaganna greiddi jeg atkvæði á móti fjárveitingu til að ryðja vör við Ingólfshöfða. Nú hefir komið fram brtt. um þetta frá háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) á þgskj. 606, að þetta verði því að eins gjört, ef landsverkfræðingur sjái, að það komi að notum.
Jeg tók það fram við 2. umræðu, að það eitt mælti á móti þessu, að hafnarfróður maður hefði ekki athugað, hvort fyrirtækið væri framkvæmanlegt, og því væri ekki hægt að segja annað en að þetta fje væri veitt í blindni. En það var ekki af því, að jeg væri því mótfallinn, að þetta væri gjört, ef vissa væri fyrir því, að það kæmi að notum.
Ef athugasemd háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) verður samþykt, greiði jeg þessari fjárveitingu atkvæði mitt, og tel það í samræmi við fyrri afstöðu mína til þessa máls.