28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í B-deild Alþingistíðinda. (1220)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Jón Magússon:

Jeg hygg, að það hafi komið ljóslega fram hjá hv. samþingism. mínum (S. B.), hvað bannl.nefndin hafði hugsað sjer, þegar hún ætlaðist til, að veitt yrði fje til aukins eftirlits með bannlögunum. Það er því í rauninni óþarft fyrir mig að segja nokkuð um það. En af því, að háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) dró það í efa, að þetta myndi að gagni koma, vil jeg leyfa mjer að sýna fram á, að þessi fjárveiting gæti gjört mjög mikið gagn.

Nefndin hafði hugsað sjer að þessu fje yrði varið til viðbótareftirlits, þannig, að vörður yrði hafður í millilandaskipunum, sem hingað kæmu til lands, meðan þau lægju á höfnum inni, og má ske öðrum vöruflutninga- eða mannflutningaskipum. Mjer dettur ekki í hug að segja, að með þessu væri fengin örugg vissa fyrir því, að ekkert áfengi flyttist inn í landið. Jeg býst við, að það hafi engum komið í hug, að með þessu verði alveg komið í veg fyrir það að lögin verði brotin. En úr því að þingið hefi nú einu sinni samþykt þessi lög, þá verður það að gjöra sitt til að sporna við því, að þau verði brotin. Þessi skylda hvílir jafnt á þeim, sem bannlögunum eru í raun mótfallnir, sem hinum, er þeim eru hlyntir. Jeg hygg, að flestir lögreglustjórar myndu verða á mínu máli um það, að slíkt eftirlit, sem hjer er haft fyrir augum, mundi koma að miklu haldi. Mjer er sagt um einn lögreglustjóra, bæjarfógetann á Akureyri, Pál Einarsson, sem viðurkent er, að hafi látið sjer mjög ant um framfylgd bannlaganna, að hann telji það mjög mikils virði, að hafa vörð í skipunum. Jeg get og látið þess getið, að jeg hygg það samhuga álit allra þeirra manna hjer í Reykjavík, sem mest láta sjer ant um bannlögin, að það gæti gjört mikið gagn að hafa vörð í skipum, sem liggja hjer á höfninni. Á annan hátt er alveg ómögulegt að koma við öruggu eftirliti.

Háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) talaði um, að árið 1910 hefðu komið hingað til landsins 1600 aðkomuskip. Jeg held að þetta hljóti að vera misskilningur. Hjer eru víst taldar allar viðkomur erlendra botnvörpunga eða annara erlendra fiskiskipa, því að með þau er að sumu leyti farið, sem komi þau frá útlöndum hvert sinn, er þau hafna sig, jafnvel þótt þau komi hjer inn dag eftir dag. En annars gjörir þetta ekki svo mikið til, því að það þarf ekki svo mjög að óttast útlend fiskiskip, sjerstaklega ekki skip frá Englandi, því að þau hafa hjer um bil aldrei áfengi með sjer nú orðið. Að vísu hafa skip frá Frakklandi áfengi með sjer, en þau hafa jafnaðarlega svo stutta viðdvöl, að lítil hætta getur af þeim staðið. Það eru að eins verslunarskipin, flutningaskipin, og einkum þau sem koma hingað stöðugt. Frá þeim stafar mest hættan, ekki einungis frá brytunum, heldur frá allri skipahöfninni, þegar hún fer að kynnast.

Jeg skal bæta því við, að ef þingið gjörir ekki neinar ráðstafanir í þessa átt, þá er jeg hræddur um, að ýmsir lögregluatjórar þykist verða svo að segja, að leggja árar í bát. Jeg vona að hv. deild verði við tilmælum meiri hluta bannlaganefndarinnar og veiti þennan styrk, sem fram á er farið í þessu augnamiði.

Úr því að jeg stóð upp, þá vil jeg leyfa mjer að mæla með lánveitingunni til Hjálpræðishersins. Jeg get vottað það, sem lögreglustjóri hjer í bænum, að Hjálpræðisherinn hefir unnið mikið gagn, ekki eingöngu fyrir bæinn sjálfheldur og fyrír aðkomumenn. Það er ekki hægt til þess að ætlast, að Reykjavíkurbær geti lagt mikið fje til slíks gistihúss, því að það hefir miklu meiri þýðingu fyrir aðkomumenn, heldur en bæjarmenn, sjerstaklega fyrir þá aðkomumenn, sem þarf að koma fyrir um stuttan tíma. Gisting og aðbúnaður allur er líka langt um ódýrari ferðamönnum á gistihæli hersins; heldur en annarsstaðar. Jeg vona að deildin taki vel í þessa lánbeiðni. Af því; sem jeg hefi veitt eftirtekt, er hið mesta gagn, sem leiðir af starfsemi Hjálpræðishersins, einmitt í þessa átt.