28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (1221)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Sigurður Eggerz:
Jeg skal ekki þreyta háttv. deild með langri ræðu. Jeg vildi að eina minnast á tvo mótorbáta, sem jeg hefi ekki getað orðið sammála strandferðanefndinni um. Annar báturinn er mótorbáturinn, sem gengur um Hvítá. Þeir, sem hann nota, telja hann vera til mikils gagna, enda þótt fyrirkomulagið sje ekki sem best. En það má laga, og vil jeg eindregið mæla með því, að þessi styrkur verði veittur.
Hinn mótorbáturinn er sá, sem gengar milli Víkur, Stokkseyrar, Vestmannaeyja og Eyrarbakka. Til þessa báts hafa verið veittar 6000 kr. hvort úr fjárhagstímabilsins. Gagn af ferðum. bátsins hafa helst Skaftafellssýsla og Árnessýsla. En auk þess hafa sjerstaklega 6 verslanir í Skaftafellssýslu og. Rangárvallasýslu mikil not þessara ferða. Eins og skýrslur þær um ferðir bátsins, sem lagðar hafa verið fram, sýna, er mjög mikil þörf á þessum ferðum. Og sýslubúum er þetta vel ljóst, því að áhuginn er svo mikill í þessum tveimur sýslum, sem aðallega hafa not ferðanna, að Vestur-Skaftafellssýsla hefir ætlað að reyna að kaupa bátinn, annaðhvort sjálft eða í sambandi við Árnessýslu. Til þess að það geti orðið, þarf að veita þeim þessar 6000 kr., eins og undanfarið hefir verið gjört; en svo framarlega sem styrkurinn yrði nú lækkaður, þá myndu sýslurnar ekki
treysta sjer til að kaupa bátinn. Sýslubúar hafa farið fram á það við mig með sjerstöku tilliti til þess, að þeir ætli að kaupa bátinn, að jeg færi þess á leit við Alþingi, að það hækkaði styrkinn. Vegna hins erfiða fjárhaga hefi jeg þó ekki treyst mjer til að leggja það til; að styrkurinn verði hækkaður, en hins vegar vænti jeg þess fastlega, að hann fái að standa eins og hann hefir áður verið, 6000 kr. á ári. Þetta er ekki einungis áhugamál Vestur-Skaftafellssýslu, heldur einnig og engu síður Árnessýslu. Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þennan lið.
Háttv. framsögum. (P. J.) tók það illa upp fyrir mjer, að jeg lagði það til að Eimskipafjelagi Íslands yrðu veittar 40000 kr. Hann hefir misskilið mig, ef hann hefir haldið að jeg væri að bera honum brigsl, eina og jeg hefði haldið, að það væri hugur hans, að draga úr þeirri von, sem maður hefir gjört sjer um framtíð Eimskipafjelaga Íslands. Það hefir mjer aldrei komið í hug, en það er vitanlegt, að það hefir stórmikla þýðingu fyrir fjelagið, einmitt nú, þegar það er komið á stað, að það fái ríflegan styrk af landssjóði. Það er engin ástæða til að skera þann styrk við nögl; því að þótt ekki þyrfti að nota allan styrkinn, þá lendir hann í góðum höndum. Það þýðir heldur ekki það, að þessi styrkur verði veittur alt af áfram, en það hefir verulega þýðingu fyrir fjelagið, að finna að landssjóður standi að baki sjer. Þar sem strandferðirnar næsta ár munu reynast betur en áður, verð jeg að telja það mjög óheppilegt, að minka þennan styrk. Jeg sje svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta meira, en vænti að deildin taki þessu máli vel.
Það er kann ske óþarfi að minnast á það, en jeg get þó ekki stilt mig um að segja nokkur orð um tillögu háttv. þm. Dal. (B. J.) þar sem hann leggur það til, að sett verði lík athugasemd um styrkinn til veganna eins og símanna. Jeg verð að leyfa mjer að mótmæla þessari tillögu, því að jeg álít, að síst af öllu megi draga úr vegalagningunni. Það er alt öðru máli að gegna um vegalagningu eða símalagningu. Annars skal jeg benda á það, að ef farið er að setja slíkar athugasemdir við alt, þá þýðir það, að stjórnin verður einráð um allar fjárveitingar og framkvæmdir, sem í sambandi við þær standa.
Jeg fyrir mitt leyti tel það mjög miklu skifta, ef athugasemdin er feld burtu. Jeg skal ekki orðlengja þetta meira, en vil að lokum taka í sama strenginn og háttv. 1. og 2. þm. Rvk. (Sv. B. og J. M.) um fje það, að upphæð 5000 kr., er ætlað er til þess að greiða fyrir því, að bannlögin verði ekki brotin.
Mjer virðist svo, að þetta bannlagamál og hvernig farið er með þessi lög, sje ekki neitt hjegómamál. Það er alvörumál, og vanheiður fyrir þjóðina, ef ekkert er gjört, sem þýðingu getur haft, til þess að lög þessi sjeu virt og í heiðri höfð.
En eins og háttv. 2. þm. Rvk. (J. M.) tók fram, er ástæða til að ætla, að þessi fjárveiting hafi þýðingu, til þess að gæta bannlaganna og þeim sje ekki óvirðing gjörð. Jeg vona því, að háttv. deild taki orð hans mest til greina, því að hann hefir mesta reynslu á þessu sviði. Jeg vonast enn fremur eftir því, að háttv. deild taki þessu vél, vegna þess, að öllum ætti að vera það ljóst, hversu óumræðilega mikið það hefir að þýða, ef bannlögin yrðu betur haldin en mönnum leikur grunur á að eigi sjer stað.