28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í B-deild Alþingistíðinda. (1228)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Guðmundur Hannesson:
Jeg þarf ekki margt að tala út af breytingartillögu minni á þgskj. 888, því að háttv. 1. þm. N.-Múl. (B. H.) hefir tekið ómakið af mjer. En út af ummælum háttv. 2. þingm. S.-Múl. (G. E.) læt jeg þess getið, að jeg hefi einn borið þá tillögu fram, og geng þar ekki að erindum neins annars. Jeg sje ekki til neins að fara að karpa meira um þetta mál. Dr. Guðm. Finnbogason hefir skýrt mjer frá, að það sje ekki að sínu undirlagi, að orðalaginu á liðnum hafi verið breytt í efri deild.
Viðvíkjandi Hamarsárbrúnni vil jeg leyfa mjer að vekja athygli á því, að þessi fjárveiting var samþykt í efri deild með miklum atkvæðamun, ekki nema. tvö atkvæði í móti. Það er líka ekki nema eðlilegt, þegar málið er athugað. Það er enginn efi á því, að nauðsyn er á brúnni. Hreppurinn og sýslan mundu ekki vilja leggja fram 3–4000 krónur að nauðsynjalausu. Mjer skilst ekki betur en að það sje búmannlegt af þinginu að láta byggja brúna nú, þegar í boði er 1/3 kostnaðarins annars staðar frá.
Jeg á breytingartillögu á þgskj. 886 um að Langadalsvegurinn fái að halda þeim styrk, sem veittur var til hans, þegar fjárlögin fóru hjer síðast úr deildinni. Jeg þarf ekki að orðlengja. um það mál: Deildin fær tækifæri á að sýna, hvort hún vill draga af því fje, sem áður var veitt.
Um dócentsembættið við Háskólann, sem fjárlaganefndin hefir tekið svo illa í, bið jeg menn að hyggja vel að því, að hjer er um það að ræða, að fá færan og góðan fræðimann, sem hefir fengið góða undirbúningsmentun. Þingið hefir tekið skammarlega í þetta mál. Mönnum veg það í augum, að það skuli vera tíu kennarar við læknadeildina, en þá sögu má líka segja öðruvísi. Í raun og veru eru þeir ekki nema tveir, en í guðfræðisdeildinni eru þeir þrír, tveir prófessorar og einn dócent, svo að hjer er ekki farið fram á annað en það, að læknadeildin fái jafnrjetti við guðfræðisdeildina. Læknisfræðin er illræmd fyrir það um allan heim, hvað kensla í henni sje dýr og mannfrek.
Um launahækkunina til dócentanna við Háskólann skal jeg ekkert tala, og ekki er jeg á móti henni, en hitt sje jeg, að sjeu dócentslaunin hækkuð, þá ber nauðsyn til að bæta hjeraðslækninum eitthvað upp þá miklu kenslu, sem hann hefir á hendi fyrir einar 800 krónur.
Þá hefir komið fram tillaga um að fella burt styrkinn til þess að semja kenslubók í yfirsetukvennafræði. Jeg get ekki verið með henni. Það er þó eðlilegt, að menn skilji ekki þetta mál, ef þeir hafa ekki fengið upplýsingar um það. Bókin, sem nú er notuð, er orðin gömul, og stúlkurnar, sem koma í skólann, skilja ekki útlent mál, vel flestar, og verða þá að láta nægja það; sem til er á íslensku. Ef forstöðumaðurinn vill skrifa kenslubók; þá virðist ekki mikið þó að veittur sje til þess styrkur, svo sem 50 kr. á örkina.
Þá eru kolin. Mjer finst það nokkuð í þoku, hvort eigi að veita fje til þess að rannsaka námurnar, eða veita styrk til að vinna þær. Ef á að reka kolanámur hjer eins og í útlöndum, þá þarf til þess stórfje.
Háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.), hefir komið fram með brtt. þess efnis, að heimilt sje að fresta því, að setja miðstöðvarhitun í holdsveikraspítalann, ef verðhækkun á efni gjörði verkið miklu dýrara en ella. Jeg er þessari tillögu hlyntur. Finst sjálfsagt, að sama athugasemdin gildi um þessa fjárveitingu og svo margar aðrar, er samþyktar hafa verið.