28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (1231)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Bjarni Jónsson:

Jeg ætla að gjöra nokkrar athugasemdir við brtt , sem jeg hefi borið fram við fjárlögin í þetta sinn.

En áður en jeg sný mjer að þeim, votta jeg þakklæti mitt háttv. þm. N.- Þing. (B. S.) fyrir þær brtt., sem hann hefir flutt fram. Jeg þarf ekki að mæla með annari þeirra, styrkveitingunni til söngmannsins Einars Hjaltested, með því að fjárlaganefndin hefir tjáð sig henni samþykka, og kann jeg henni þakkir fyrir það. Hin tillaga háttv. þm. N.-Þing. (B. S.) lýtur að styrkveitingu til dr. Alexanders Jóhannessonar. Eins og menn muna, bar jeg fram tillögu Um þessa styrkveitingu hjer í deildinni, en þá lá málið ekki eins opið fyrir mönnum og nú, sem sýndi sig í því, að fjárlaganefnd Ed. hefir sýnt mjer og málefninu þann greiða, að taka fjárveitinguna upp. Tillaga háttv. þm. N.-Þ. (B. S.) fer fram á það, að flytja fjárveitinguna úr 14. gr. í 15. gr. Kemur það til af því, að sumir eru hræddir um, að hjer sje stofnað til fasts embættis, ef fjárveitingin er undir 14. gr., en það er hvorki tilgangur minn nje hins unga manna, er styrksins æskir. Hann ætlar sjer að lesa fyrir við Háskólann þessi tvö ár, og er þess full þörf nú, er Þjóðverji sá, er til þess var ætlaður, er nú hertekinn. Jeg vil einnig biðja menn vel að gæta að því, að hjer er um enga eyðslu að ræða, því að ef þessi þýski kennari hefði verið hjer, þá mundi hann eftir venjunni hafa fengið líkan styrk, líkt og franski kennarinn fjekk hjer. Nú, þar sem styrkveiting þessi er færð í 15. gr., þá má það vera mönnum auðskiljanlegt, að hjer er ekki um embættisstofnun að ræða. Jeg þarf ekki að lýsa þessum unga manni. Hann er nú hingað kominn og hefir kynst mönnum hjer. Síðan jeg mintist á hann síðast, hefir hann lokið doctorsprófi á Halli á Þýskalandi í þýskum bókmentum, Engilsaxesku og heimspekissögu; lauk hann doctorsprófinu með heiðri, svo að hann má teljast vel til þess fallinn að halda uppi þessari kenslu. Hann er ungur maður og áhugasamur, sem með dugnaði hefir brotist í gegn um nám í tveimur erlendum ríkjum. Hefir hann því sýnt sig maklegan til að fá þenna styrk, uns hann hefir »habiliterað« sig, sem kallað er, þ. e. samið ritgjörð, er veiti honum kenslurjettindi við þýska háskóla.

Þá sný, jeg að brtt. mínum.

Fyrst er brtt. við 11. gr. B.11, um peningaskápa handa sýslunum. Það er rjett, sem hæstv. ráðherra sagði, að svo er sem eins konar sálufjelag hafi verið með mjer og honum, er við höfum báðir orðið til að flytja tillöguna fram, án þess að vita hvor af öðrum. En með því að tillaga mín var 6 krónum dýrari og jeg þar með fæ tækifæri til að spara landssjóði 6 kr., þá lýsi jeg því hjer með yfir, að jeg tek tillögu mína aftur.

Við 12. gr. 8. lið hefi jeg leyft mjer að bera upp brtt. um 1000 kr. árlegan styrk til húðsjúkdómalæknis Magnúsar Júlíussonar. Þessi ungi og efnilegi læknir hefir áður sótt til þingsins um styrk, en verið synjað um hann, mest af sparn- aðar ástæðum. Allir vita, að sjúkdómar þeir, sem hann fæst við að lækna, eru illir viðureignar, og að varhugavert er, að þeir breiðist út um landið. Jeg veit ekki betur en að það hafi verið efst á baugi í læknadeild Háskólans, að semja lög um varnir gegn útbreiðslu slíkra sjúkdóma, og ef svo hefði orðið, mundi þessi læknir hafa verið ráðinn til þess, að standa fyrir þeim vörnum. Enn fremur er á það að líta í þessari dýrtíð, sem nú heyrist oft í munni manna, að það mundi koma sjer vel fátæklingum, að geta fengið ódýrari læknishjálp við þessum sjúkdómum, svo sem verða mundi, ef læknirinn fengi styrk þann, sem hjer um ræðir. Læknarnir geta ekki lifað á starfi sínu, ef menn geta ekki borgað þeim læknishjálpina; verða þeir þá að láta af læknisstörfum og taka sjer annað fyrir höndur. Að öðru leyti skal jeg taka það fram, að jeg þekki vel mann þann, sem hjer um ræðir. Hann er maður efnilegur og áhugasamur og vel að sjer.

Þá er 14. gr. B. II. 7., sem lýtur að námsstyrk til skóla þess, sem nú er kalaður mentaskóli almennur, en áður var kunnur undir nafninu »lærði skóli«. Þótt Ed. hafi margt vel gjört í fjárlögunum, þá verð jeg að telja, að henni hafi orðið mikið á, er hún lækkaði þenna styrk um 500 kr. og hnýtti þar aftan í þeirri óhæfu athugasemd, að styrkurinn skyldi lækka um þessa upphæð árlega, þangað til hann væri með öllu horfinn. Jeg ætla mjer ekki að halda hjartnæma ræðu um þetta mál, en að eins minna þá lærðu menn á, sem hjer eru, að gjöra yfirlit yfir, hverjir af vorum nýtustu mönnum mundu hafa komist áfram, ef eigi hefði þeir notið neins styrks. Jeg þarf ekki að nefna nöfn, nöfnin liggja tvenn og þrenn á tungu manna, ef menn vilja rekja stúdenta, sem útskrifast hafa á síðustu 50 árum. Afleiðingin af þessari tiltekju mundi verða sú, að aftrað yrði öllum fátækum gáfumönnum utan Reykjavíkur að ganga mentaveginn, svo að þeir einir ættu þess kost, er heima ættu í Reykjavík, eða væru synir efnamanna. Raunar eru fáir sveitamenn svo efnaðir, að þeir geti kostað syni sína í skóla. Afleiðingin yrði því sú, að fátækir menn utan bæjar gætu yfirleitt ekki komist í skóla, þótt fluggáfaðir væru. Þá væru að eins eftir efnaðir embættismenn og kaupmenn, sem gætu látið syni sína ganga skólaveginn. Ekki segi jeg, að þeir geti ekki átt gáfaða sonu, en það hefir sýnt sig, að þeir láta oft syni sína læra, sem ekki hafa gáfur til þess. En fátækir menn ganga alls ekki mentaveginn, nem þeir hafi gáfur. Þess vegna vil jeg alls ekki lækka styrkinn, heldur hækka hann eins og hann var áður, til þess að gáfaðir menn geti notið sín. Það getur farið svo, að engir nema Reykvíkingar geti notað þenna skóla. Segi jeg það ekki til þess, að niðra Reykvíkingum, nje af því, að jeg telji þá ógáfaðri en aðra menn. Jeg get hugsað mjer að það gæti komið fyrir, að einhver þingmanna á komandi tímum klöknaði, er hann færi að úthluta styrknum til mentamannanna, og er mjer þá sem jeg sjái háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) starfa að þessu verki. Athugasemd þá, er Ed. hefir hnýtt við styrkinn, vil jeg nema í burtu og geta menn þá, ef þeim sýnist svo, sett inn athugasemd þá, sem jeg hefi flutt fram á þgskj. 841.

Þetta, sem jeg hefi nú sagt um lærða skólann, gildir einnig um Akureyrarskólann. Jeg vil ekki, að námsstyrkur sje lækkaður þar. Býst jeg við að tillaga mín gangi hjer greiðlega fram, vegna þess, að hún fer fram á hið sama, sem áður hefir verið samþykt hjer og til var ætlast í stjórnarfrv.

Þá á jeg tillögu um lánsheimild til raflýsingar í Suðurfjarðarhreppi. Jeg fæ ekki sjeð, hvernig þingið getur neitað þessum hreppi um slíkt lán fremur en öðrum hreppum, svo sem Ísafirði og Húsavík. Ber jeg þessa tillögu alls ekki fram í því skyni, að fara í hrossakaup, sem háttv. framsm. (P. J.) nefndi svo kunnuglega. Jeg vil láta eitt yfir alla ganga, með því skilyrði, að peningar sjeu fyrir hendi.

Þá hefi jeg rakið allar þær tillögur, sem frá mjer eru runnar.

Þá ætla jeg að víkja að nokkrum smátillögum, sem frá öðrum eru komnar. Svo virðist, sem hjer í deildinni sje fjelag eitt, er í eru 2 menn, og mun það vera sálufjelag; á jeg þar við háttv. 1. þm. Rang. (E. J.) og 2. þm. S.-Múl. (G. E.).

Þeir vitru tillögumenn, háttv. 1. þm. Rang. (E. J.) og 2. þm. S.-Múl. (G. E.), leggja til, að fella burtu styrkinn til Vestmannaeyinga, til þess að leita að drykkjarvatni þar í eyjunum. Þeim farast viturlega orð um þetta, eins og þeirra var von og vísa; þeir leggja það nefnilega til, að Vestmannaeyingar drekki regnvatnið af húsþökunum. Auðvitað minnast þeir ekki á, hvað menn eigi að drekka þegar ekki rignir, en ef jeg ætti að geta mjer nokkura til um það, hvað þeir vilji láta menn drekka, þá finst mjer það einna best í samræmi við annað, sem þeir leggja til málanna, að ætlast til, að menn drekki sjó, þegar regnvatnið þrýtur. Líklega ætlast þeir þó til, að saltið verði áður tekið úr honum, og yrði þá landið að gjöra það. Er ekki víst að það reyndist ódýrara en að veita þennan litla styrk. Jeg man ekki eftir að hafa sjeð jafn óviturlega tillögu, sem þessa, þótt margar sjeu auðvitað vitlausar. Þetta er ein af þeim tillögum, sem ekki ætti að koma fram á Alþingi Íslendinga.

Þá hafa þessir sömu vitru fjármálamenn komið fram með aðra tillögu, álíka viturlega. Þeir vilja sem sje fella styrkinn til símastöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Þessi tillaga dæmir sig sjálf. Hún er alveg sams konar og meginið af tillögum þeirra, ein af þeim alla vitlausustu, sem sjást hjer á þinginu, og sýnir ekkert annað en að þessir herrar vilja altaf skifta sjer af öllu, sem þeir geta, en hafa vit á sárfáu.

Þó kemst nú fáfræðin ekki í algleyming, fyrr en þessir sömu háttv. herrar vaða fram á orrustuvöllinn með sláturhnífinn á lofti, blóðugir upp til axla og ráðast á mentamálagreinina í fjárlögunum. Jeg ætla að benda þeim háttv. herrum á það, að flestir munu verða mjer sammála um það, að þeirra orrustuvöllur sje ekki á því sviði, en líklega skilja þeir það ekki fremur en annað.

Háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) leggur það til, að feld sje burtu 500 kr. styrkveiting til bókasafnsins á Seyðisfirði, til þess að kaupa fyrir bækur. Varla get jeg trúað því um hann, að slátrunarlöngunin sje orðin svo mikil, að hann geti ekki sjeð granna sína á Seyðisfirði í friði, þótt engin ástæða sje fyrir hann að amast við þeim. Hitt finst mjer trúlegra, að honum finnist þessir hættugripir, bækurnar, vera helst til nærri sjer þarna fyrir austan. Ekki nema tveir firðir á milli.

Þá leggur sami háttv. þm. næst til að lækka styrkinn til að binda bækur við Landsbókasafnið. Hann vill líklega sjá um það, sem best hann getur, að bækurnar verði ekki lesnar nema sem minst, og hefir því fundið upp á þessu happaráði. (Guðmundur Eggerz: Jeg á enga tillögu um þetta). Jeg heyri að háttv. þm. segist enga tillögu eiga um þetta. Jeg skal gæta að, hvort mjer hefir skjátlast. — Þetta mun vera rjett hjá háttv. þm. Tillaga hans, sem jeg var með, er ekki um þetta, en lítið bætir það fyrir honum, því að hún er miklu verri en jeg bjóst við, jafnvel af honum. Jeg bjóst ekki við að jafnvel hann myndi gjörast svo djarfur að hrófla við fjárveitingunni til að láta ljósmynda bækur og skjöl á útlendum bókasöfnum. Það er svo fjarri því, að það eigi að fella burtu þennan styrk, að við ættum helst að veita fje til að láta »Phototypera« alt Árna Magnússonar safnið. Þessi tillaga háttv. þm. er því álíka viturleg og aðrar uppástungur hans.

Þá kem jeg að mesta kappanum í þessari orustu hjer á fjárlagavöllum. Það er 1. þm. Rang. (E. J.). Hann veður í gegnum fylkingar, alblóðugur með hnífinn á lofti, og hlífir engum, ekki einu sinni sínum eigin flokksbræðrum, því að hann vill fella burtu styrkinn til að koma fánaskýrslu landlæknisins út á dönsku. Jeg býst ekki við; að það sje af illvilja við þennan flokksbróður sinn, sem hann leggur þetta til, heldur af því að maðurinn er veikur af »liðafallssýki«.

Jeg ætla nú samt einu sinni að vera góður við heimastjórnarflokkinn og greiða atkvæði með því, að þessi styrkur fái að standa, því jeg hefi sannfrjett að Heimastjórnarmenn ætli allir sem einn að greiða atkvæði með næsta lið á eftir, styrknum til Ragnars Lundborg til að gjöra Ísland kunnugt erlendis.

Þessi sami þm. (E. J.) hefir áður sýnt ást sína til lista og vísinda og gjörir það enn, með því að leggja til að styrkurinn til Jakobs Jóhannessonar falli burtu. Jakob býðst til að semja kenslubók í setningafræði fyrir þessa litlu borgun. Þessa kenslubók hefir lengi vantað tilfinnanlega við alla, skóla, þar sem íslenska er kend, og er því ekki nema sjálfsagt að veita þennan setyrk. En hv. þm. sýnir með þessu ást sína til móðurmálsins og þjóðlegra vísinda. Maðurinn, sem í hlut á, er ungur áhuga- og gáfumaður og ágætlega til þessa starfa hæfur. Fjárlaganefndin hefir ekki lagt á móti styrknum, og býst jeg því við, að háttv. 1. þm. Rang. standi einn upp með till. sinni.

Sömu skil vill háttv. þm. gjöra styrknum til dr. Alexanders Jóhannssonar. Það eru náskyldar fræðigreinar, þýska og íslenska, og því er ekki nema von að hann vilji láta eitt ganga yfir báðar.

Þá ræðst háttv. sami þm. næst á styrkinn til Helga bróður míns, og vill láta lækka hann um 300 kr., frá því sem hann hefir verið samþyktur áður hjer í deildinni. Jeg get fullvissað hv. deild um það, að grasafræði er þessa manns eina áhugamál, og jeg teldi það mjög illa farið, ef farið yrði að klípa af styrknum. Jeg vona því að deildin fari ekki að brjóta orð sín og taka aftur það, sem hún hefir sagt, og láti styrkinn ekki færast niður úr 1800 kr. Í þessu sambandi vil jeg einnig minna á styrkinn til dr. Helga Pjeturss. Jeg tel það illa farið, að háttv. Ed. skyldi fara að lækka hann; mjer finst að styrkirnir til þeirra nafnanna ættu að haldast í hendur, og vona því, að styrkurinn til Helga Pjeturs verði hækkaður aftur. Jeg veit ekki annað en að heilsa hans leyfi, að hann vinni fullkomna vinnu og sje því ekki ástæðu til að lækka styrkinn nú. Háttv. fjárlaganefnd Nd. hefir lagt til, að styrkurinn til Helga Pjeturss. yrði hækkaður upp í 1500 kr. úr 1000 eins og háttv. Ed. setti hann. Jeg býst við að nefndin hafi ekki þorað að hækka hann meira af ótta fyrir því, að háttv. fjárlaganefnd Ed. mundi þá færa hann aftur niður. Jeg get nú fullvissað menn um það, að þótt styrkurinn verði hækkaður upp í 1800 kr., þá dettur hv. Ed. ekki í hug að hrófla við honum. Það gleður mig að geta þakkað háttv. 1. þm. G. K. (B. K.) fyrir tilögu hans um þetta atriði. Honum var manna best trúandi til að leggja viturlega til mentamálanna, því að þótt hann sje það, sem kallað er ólærður, þá hefir hann þó aflað sjer stórmikillar þekkingar, bæði á efnafræði söng og fleiru.

Þá kem jeg næst að styrkveitingunni til dr. Guðm. Finnbogasonar. Menn gjöra sjer alltítt um að fella þann styrk eða minka hann. Jeg sje ekki ástæðu til að óttast, þótt einstaka fáráðlingur, sem vitanlega hafa ekkert vit á, hvað gjöra ber í þessu máli, sjeu að fjargviðrast út af þessum styrk. Eða með öðrum orðum vilji ekki láta hagnýta þá starfskrafta, sem bestir finnast í landi voru. En jeg vil þó minnast á það, að þótt merkilegt megi virðast, þá er þó tillaga háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) öllu viturlegri en tillagan frá háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.). Það er eitthvað hreinlegra, að fella styrkinn alveg, en að naga af honum, svo að hann komi að engu haldi. Menn verða að athuga það, að það er engin von, að Guðmundur Finnbogason fari að kasta frá sjer embætti sínu, og fá minni laun en hann hefir nú, fyrir það eitt, að þessir háttv. þingmenn sýna þennan dæmalausa vísinda áhuga. En sje tilætlunin sú, að hann hafi þessar sálarrannsóknir í hjáverkum sínum, þá er það því vitlausara, því að slíkt er ómögulegt. Þá er betra að veita ekki neitt, eins og háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) vill.

Háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) kemur með tillögu um að breyta orðalaginu á styrkveitingunni. Jeg get með sanni sagt, að mjer stendur alveg á sama um, á hvern veginn þetta er orðað, því að jeg veit, að Guðm. Finnbogason mun gjöra það að aðalstarfi sínu að rannsaka vinnuvísindi. Sama lýsti háttv. framsögum. (P. J.) yfir, og tek jeg þetta því eftir honum.

Jeg skal enda ræðu mína með því að lýsa því yfir, að sjeu þessir niðurskurðarþingmenn að gjöra tillögur sínar til þess, að þóknast kjósendum sínum, þá fara þeir villir vegar. Íslensk kjósendur eru ekki svo skapi farnir, að þeir vilji ekki styrkja unga og gáfaða menn. Þeir vilja láta styrkja þá vel, en ekki veita þeim neina hungurlús, eins og þessir háttv. þingmenn, sem jeg hefi nú talað við um hríð.