28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (1235)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Matthías Ólafsson:

Það hefir atvikast svo, að jeg á hjer brtt. á þgskj. 885 um utanfararstyrk handa barnar- kennurum, ásamt öðrum háttv. þingm. Háttv. Ed. hefir veitt 1000 kr. í þessu skyni, en við leggjum til, að það sje hækkað upp í 1600 kr., en þá er jafnframt ætlast til, að þeir barnakennarar, sem utan fara, gefi út skýrslu, sem ekki sje minni en ein örk prentuð, um utanför sína og árangur hennar, og útbýti henni svo gefins til allra kennara, svo að þeir, sem ekki er fært að fara utan, en verða að sitja heima, njóti þó nokkurs góðs af því, sem hinir hafa heyrt og sjeð. Jeg hygg að þau 600 króna, sem við leggjum til að bæta við í þessu skyni, myndu borga sig. Ef menn hafa trú á því á annað borð, að mentun sje nauðsynleg og að því betur sje farið, sem meira sje kent, þá hljóta þeir einnig að vilja gjöra eitthvað til þess, að kennararnir út um landið fái sem besta mentun. Hjer er því ekki farið fram á annað en gott eitt.

Þá er hjer önnur brtt., sem jeg á ásamt háttv. N.-Ísf. (Sk. Th.) á þgskj. 867 um brimbrjótinn í Bolungarvík, sem sje að skilyrðið, sem háttv. Ed. hefir sett inn fyrir fjárveitingunni, sje felt burtu. Jeg hefi tekið það fram, hjer við umræður áður, að það er gjörsamlega óhugaandi, að hreppsfjelagið geti lagt fram meira fje í þessu skyni að svo komnu. Það hefir þegar bundið sjer svo þungar byrðar, að það fær naumast undir risið, og sama er að segja um sýslufjelagið, að það hefir svo margar og þungar byrðar að bera, að það getur ekki hlaupið undir bagga með Bolvíkingum. En þegar einu sinni er búið að leggja út í það, að styrkja þetta fyrirtæki, og alt útlit er fyrir, að það verði að miklu gagni, þá er ekki hyggilegt að hætta við það í miðju kafi. Það yrði til þess, að það, sem unnið er af verkinu, yrði ónýtt að meira eða minna leyti. Og ef nokkur staður ætti heimtingu á styrk úr landssjóði, þá er það Bolungarvík. Hún hefir verið sá Vitazgjafi, sem um margar aldir hefir fætt, ekki einungis þá menn alla af Vestfjörðum, sem þar hafa stundað sjó, heldur og fjölda manns úr öllum hjeruðum, sem þar liggja næst, bæði sunnan lands og norðan. Það væri því vanþakklæti af þinginu að gjöra Bolvíkingum örðugt fyrir um framkvæmd þessa mannvirkis. Þeir hafa þegar lagt þungan skatt á sig til þess og tekið stórfje að láni, og því vona jeg það, að háttv. deild fari ekki að breyta til, heldur samþykki styrkveitinguna eins og áður, án þess að setja þau skilyrði, sem ófært er að uppfylla.

Svo á jeg nú ekki fleiri brtt., en aftur eiga ýmsir aðrir tillögur, sem jeg vildi gjarna segja nokkuð með eða móti. Jeg er því nú, eins og sumir aðrir, svo ólánssamur, að verða að kljást við háttv. fjárlaganefnd, og er það út af máli, sem fjell hjer í deildinni á dögunum, en var tekið upp í háttv. Ed., en nú legst nefndin aftur á móti því. Það er styrkurinn til ungfrúr Hólmfríðar Árnadóttur til kvöldskólahalds. Jeg veit ekki hvað margir háttv. þingmenn eru búnir að leggjast að þessum eina kvenmanni, en jeg verð að halda því fram, eins og áður, að skóli, eins og þessi, sje sjerstaklega nauðsynlegur hjer í Reykjavík. Hjer er svo margt fólk, sem vinnur fyrri hluta dags, en á sig sjálft á kvöldum, og það viðurkenna allir, að mentunin sje nauðsynleg, einnig fyrir vinnufólk, og ekki hafa komið rök fram gegn orðum mínum um það, að betra sje að fólkið gangi í skóla, en að það gangi á götunni eða gjöri annað verra. Jeg vona því, að þegar til þess kemur, að greiða atkvæði um tillöguna um það, að lækka þenna styrk, þá verði háttv. deildarmenn svo sanngjarnir, að þeir greiði atkvæði á móti fjárlaganefnd.

Þá eru brtt. á þrem þgskj., frá háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.), háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) og háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.) allar út af fjárveitingu til doktors Guðm. Finnbogasonar. Það er nú búið að tala svo mikið um hana, að það er að bera í bakkafullan lækinn, að bæta víð það; en þar sem jeg heyri að sumir hneykslast á því, að talað er um sál í sambandi við vinnu, rjett eins og sálin þurfi ekkert að vinna, það þykir mjer undarlegt. En eins og það sje ekki einmitt það, sem Guðm. Finnbogason langar til að reyna, að koma líkamanum í samband við sálina, þannig, að hann geti unnið eins og sálu gætt verkfæri. Jeg greiði engu síður atkvæði með þessu fyrir því, þótt það sje veitt til sálarfræðisrannsókna, en þótt það hefði verið stilað til þess, að leiðbeina mönnum í vinnubrögðum, því að jeg hefi nú þá skoðun, að arðurinn af þessu muni einmitt falla atvinnuvegunum í skaut.

Jeg ætla að það sje háttv. þm. Dal. (B. J.), sem á brtt. á þgskj. 854 við 21. gr. 8. og 9., um raflýsing á Bíldudal. Jeg er þessari tillögu sjerlega meðmæltur og ekki ekki að þeir, sem halda fram stórlánum til sams konar fyrirtækja á einum stað, geti verið að neita harðlega um þau á öðrum, og mjer dettur í hug klausan gamla: »Ólafur pá og Ólafur uppá er ekki alveg það sama«. Jeg álít að bæði þessi lán eigi jafnan rjett á sjer, og þótt jeg mæli með þessari tillögu, þá er það ekki af því, að jeg vilji fella hitt lánið, en heldur vil jeg annað en að bæði falli.

Að öðru leyti skal jeg ekki skýra frá því, hvernig jeg ætla að greiða atkvæði. Jeg mun vera þegar ráðinn í því um flest atriði, enda þótt óhæfilega stuttur tími hafi verið til að átta sig á brtt., þar sem menn fengu þær sumar ekki fyrr en í morgun.