28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Sigurður Gunnarsson:

Jeg á enga brtt. í þetta sinn en býst hins vegar við, að jeg verði við þær riðinn

allar, sem fyrir liggja, áður en lykur, með atkvæði mínu. Tíminn verður að leiða það í ljós, hve heppilega það tekst, en það er mín afsökun, að enginn gjörir svo öllum líki, og við það verður að sitja.

Jeg stóð aðallega upp til þess, að víkja máli mínu að háttv. fjárl.n., og þá sjerstaklega að háttv. framsögum. hennar (P. J.). Einkum er það um tvö atriði í 13. gr., sem jeg vildi tala lítið eitt. Það eru liðirnir B. II. og III., sem eru um flutningabrautir, þjóðvegi og brúagjörðir. Jeg skal geta þess þegar, að jeg get að miklu leyti fallist á stefnu og tillögur nefndarinnar, og þar á meðal það, sem stendur í nefndaráliti hennar, að hún geti ekki fallist á það með hv. Ed., að fresta, sökum árferðisins, vegagjörðum, og leggi því til breytingar í þá átt, að hækka vegafjeð. Eins er jeg fyllilega samdóma henni um hitt, sem hún segir, að ástæða gæti verið til að fresta að miklu eða öllu leyti öllum brúargjörðum, eða færa þær til að minsta kosti; og þá er jeg sömuleiðis á sama máli um athugasemd þá, sem hún hefir gjört um brýrnar. En aftur á móti virðist mjer, frá mínu sjónarmiði, sem nefndin hafi ekki tekið nógu mikið tillit til tillagna landsverkfræðingsins í brjefi til stjórnarráðsins, dags. 30. ágúst síðastl. Hún hefir fylgt því rækilega, að því er brýrnar snertir, og einnig að nokkru leyti um vegina, en ekki þó allskostar. Einkum var það niðurlag brjefsins, sem jeg hefði óskað að hún hefði fylgt betur en hún hefir gjört. Jeg vil leyfa mjer að lesa það upp með leyfi hæstv. forseta. Það hljóðar svo:

»Til þess, að vel væri frá öllu gengið, þætti mjer landstjórnin einnig þurfa að hafa heimild til þess, að láta vinna meira að vegagjörðum en sem fjárveitingin til þeirra nemur, ef brúargjörð verður látin farast fyrir, vegna örðugleika á efnisútvegunum. Ástæðan til þessa er sú, að samkvæmt fyrirkomulagi því á útboðun efnis m. m., sem fyrirskipað er í áðurnefndu brjefi stjórnarráðsins 18. maí þ. á., mun verða ófært að fresta ráðningu verkamanna til brúagjörðanna, þangað til tilboð um efni í brýrnar eru fram komin, en fyrr verður ekki sjeð, hvort nauðsyn er að fella brúargjörðirnar niður. Getur það því komið fyrir, að hætt verði við brúargjörð, en menn til vinnunnar sjeu ráðnir, og þarf þá að vera heimild til þess, að láta þá vinna annað. Mætti þessi heimild vera bundin við það, að unnið væri að lögmæltum vegagjörðum, sem eru flutningabrautirnar, eða að þeim vegagjörðum á þjóðvegum og flutningabrautum, sem jeg í tillögum mínum, daga. 80. okt. f. á., hefi lagt til, að yrðu látnar ganga fyrir öðrum«.

Það leiðir nú einnig af því, sem jeg hefi sagt þegar, að jeg er fyllilega samdóma verkfræðingnum um þetta, og ef háttv. nefnd hefði farið eftir þessu að öllu leyti, þá hefði hún komið með sams konar aths. við 13. gr. B. II. og III. og fólgnar eru í þessum kafla brjefa landsverkfræðingsins. Þess vegna hefði hún að mínu álíti gjarna mátt ganga lengra í því, að færa frumvarpið að þessu leyti aftur í sömu átt og það var, þegar það kom frá stjórninni, þannig, að ef brúargjörðir færust fyrir, vegna dýrleika á útlendu efni, þá yrði því meira gjört að vegagjörðinni.

Þetta var það sjerstaklega, sem jeg vildi skjóta til háttv. fjárlaganefndar, ekki af því, að jeg búist við að hún geti gjört nokkuð í þessu nú við þessa umr., en hins vegar gæti hún rætt um þetta við fjárlagan. í Ed. og vitað, hvort hún mundi ekki vilja fallast á einhverja aths. í þessa átt.

Svo er það að eina ein brtt. önnur, sem jeg vildi minnast á. Hún er frá háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), á þgskj. 874, þar sem hann leggur til að veita Guðm. E. Guðmundssyni bryggjusmið alt að 12 þús. kr. lán úr viðlagasjóði, til þess að starfrækja kolanámu hjá Sjöundá í Barðastrandarsýslu. Jeg get nú að mörgu leyti fallist á það, sem hv. 1. þm. Rvk. (S. B.) sagði um þetta, að rannsóknin á því er ófullkomin enn þá, og er jeg þar ekki í samræmi við greinarhöf. í Morgunblaðinu í morgun, sem sem heldur því fram, að fullsannað sje, að hjer í landi sje til gnægð kola. En hitt hygg jeg sannað, að hjer sje til allmikið af brúklegum brúnkolum, og nú hefir þessi maður, sem jeg nefndi áðan, sýnt lofsverðan dugnað í því, að leita þau uppi, og komið með álitleg sýnishorn af þeim, sem hafa reynst vel. Að vísu jafnast þau ekki á við önnur kol, en hitt er fyrirsjáanlegt, að stórt gagn verður þó að þeim, ef mikið finst. Mjer er því nær skapi að styðja þessa tillögu.

Það kann nú að vera sá hængur á þessu, að þótt peningarnir sjeu til í viðlagasjóði, þá fáist þeir ekki þaðan að svo stöddu, en þeir ættu þó að vera til snemma á næsta vori. Það má líka játa, að ábyrgðin, sem hann býður að veði fyrir láninu, er ekki mikils virði, en þar sem hjer er ekki nema um 12 þús. kr. að ræða, þá held jeg að áhættan þyrfti ekki að vera mikil, ef svo er hagað til, að landssjóður borgi ekki út fjeð nema smátt og smátt, og á meðan má sjá að gjörðir mannsins, og draga að sjer höndina, ef svo vill verkast. Þetta virtist mjer mundi gjöra tillöguna aðgengilegri, og þótt aldrei nema svo færi, eins og háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) benti á, að eitthvað af þessu fje færi forgörðum, þá er ekki þar með sagt, að af því þyrfti að verða neitt tjón í sjálfu sjer.

Jeg gat þess víst í upphafi, að jeg skyldi ekki tala lengi, eða fara út í allan þann fjölda af breytingartillögum, sem hjer liggur fyrir. Það væri líka óðs manns æði, og mun jeg því láta mjer nægja að sýna skoðun mína um hvað fyrir sig með atkv. mínu.