28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (1237)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Magnús Kristjánsson:
Það er að eins örstutt athugasemd út af 40. lið á atkvæðaskránni, sem er 19 liður í brtt. fjárlaganefndar á þingskjali 851. Brtt. þessi fer fram á, að í burtu falli athugasemdin við fjárveitingu til kvöldskóla á Seyðisfirði, Akureyri og Ísafirði. Jeg býst við, að fjárlaganefndin gjöri þetta ekki að neinu kappsmáli, því jeg gjöri ráð fyrir, að hún muni ekki hafa athugað það fullkomlega, af hvaða ástæðum efri deild vildi setja þetta inn. Þetta er þannig til komið, að ágreiningur og vafningar hafa orðið út af því; að vafi hefir leikið á því, hvort styrkur þessi skuli einungis ætlaður til styrktar iðnnemum, og aðrir komi þar ekki til greina. Styrkurinn hefir þó verið útborgaður, enda þótt fólk úr annari stjett hafi notið kenslu við skóla þessa. Það er út af þessu, sem þetta er komið inn í fjárlögin, og það virðist svo, að ekki sje nema vel við eigandi, að fyrirbyggja allan vafa í þessu máli.
Auðvitað er það tilætlunin, að fyrst og fremst sjeu það iðnnemar, sem njóti góðs af styrkveitingu þessari. En þegar svo stendur á, að rúm leyfir, þá finst mjer óþarfi að útiloka aðra. Það yrði einkum alþýðufólkið, hjú og verkafólk, sem sækti kvöldskóla þessa. Jeg veit, að öllum háttv. þingmönnum er það ljóst, að einmitt þetta fólk á afarerfitt með að menta sig, eftir að barnaskólunum sleppir. Þetta fólk hefir engan tíma, nema kvöldstundirnar, og þó að þetta í raun og veru geti ekki orðið nein veruleg fræðsla, þá verður þó töluvert gagn að því. Þetta kemur í veg fyrir það, að tímanum sje að minsta kosti varið illa, því að það er óhætt að segja, að þetta hefir víða þau áhrif, að það fólk, sem sækir þessa kvöldskóla, leiðist miklu síður út í tilgangslaust göturangl. Það verður ekki beint metið til peninga, þegar fólk hugsar um að afla sjer þekkingar, í stað þess að eyða bæði tíma og fje í óþarfa. Jeg þori óhræddur að fullyrða, að engu fje, af því, sem varið er til mentamála, er betur varið en því fje, sem lagt er til kvöldskólanna.
Jeg vona því, að háttv. deild sje mjer sammála um það, að bægja ekki mönnum frá því, að nota sjer kenslu í skólum þessum, þó þeir sjeu af annari stjett. Jeg finn ekki ástæðu til að fjölyrða meira um þetta atriði, en vil mælast til þess, að háttv: fjárlaganefnd lýsi yfir því, að hún sje ekki mótfallin því, þó að þessi athugasemd standi í lögunum. Jeg hefi svo ekki meira um þetta að segja.