28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (1238)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Þórarinn Benediktsson :

Jeg hefi ekki haft ástæðu til að lengja málþófið um fjárlögin. Háttv. framsögumaður fjárlaganefndarinnur (P. J.) hefir tekið ómakið af okkur samnefndarmönnum sínum. En það er hjer eitt atriði, sem mig langar til að fara nokkrum orðum um, vegna þess, að jeg er því svo miklu kunnugri en flestir aðrir háttv. þingdeildarmenn. Það er erindi frá hreppsnefnd Búðahreppa í Suður-Múlasýslu um eftirgjöf á símaláni. Erindi þessu fylgir umsögn landssímastjórans og meðmæli hans. Þegar fjárlaganefndin hafði athugað þetta mál, lagði hún það til einróma, að eftirgjöf fengist, og er skýrt frá ástæðunum til þess í nefndarálitinu. Málinu var svo vel tekið hjer í deildinni við 2. umr. fjárlaganna og samþykt í einu hljóði. En háttv. Ed. hefir ekki farið eins mjúkum höndum um mál þetta; var það felt þar með flestum greiddum atkv. Jeg hygg, að Ed. hafi gjört þetta af ókunnugleik, því jeg skil ekki í öðru en að henni mundi hafa virst þessi eftirgjöf sanngjörn, ef hún hefði kynt sjer málið svo sem þurfti.

Þegar símalínan var lögð frá Eskifirði til Búða í Fáskrúðfirði, var krafist framlaga frá sýslunni og þeim hreppum, sem góðs nytu af símanum, sem nam 7000 kr. Alls kostaði línan rúmlega 21,000 kr. Framlagi þessu var þannig skift niður, að sýslan lagði fram 2000, Búðahreppur 4000 og hinir hrepparnir 1000. Búðahreppur er því langhæstur, og landasímastjórinn ægir í brjefi, sem jeg hefi hjer fyrir framan mig, að þessi hreppur hafi lagt fram meiri upphæð til símans, en nokkur annar hreppur á landinu. Af þessu láni eru enn óborgaðar um 2880 kr., og leggur landssímastjórinn til, að hreppurinn fái eftirgjöf á 2000 kr. Fjárlaganefnd Nd. færði þessa upphæð niður í 500 kr. með það fyrir augum, að vera viss um að gjöra engum þeim rangt til, sem lagt hafa fram fje til símalagninga. Var það einróma álit nefndarinnar, að beiðni þessi væri sanngjörn og sjálfsögð, og háttv. Nd. fjelst á það fullkomlega. Jeg vona því, að háttv. deild taki málinu vel eins og áður, eftir að Ed. hefir felt það, og samþykki þessa eftirgjöf. Hjer er um fullkomna sanngirniskröfu að ræða, sem hverjum manni er ljóst, þegar hann hefir kynt sjer málið.

Jeg hefi ekki þreytt háttv. deild á brtt.; skrifað undir eina brtt. með háttv. 1. þm. Reykv. (S, B.) um ellistyrk til tveggja pósta. Háttv. 1. þm. Reykv. hefir talað svo vel fyrir þessu máli, að jeg finn enga ástæðu til að bæta neinu þar við, en leyfi mjer að mæla með tillögunni sem best jeg get. Jeg get sagt það, að fjárlaganefndin álítur síst of langt farið, eina og sjá má af nefndaráliti hennar.

Jeg hafði hugsað mjer að leiðrjetta misskilning, sem kom fram í ræðu hv. samþingismanna mína, þegar hann talaði um bókasafn Austuramtsins á Seyðisfirði, en jeg get sparað mjer það, því jeg veit, að hann verður leiðrjettur af öðrum, sem þykist þurfa að tala við hann um fleira. Læt jeg því staðar numið.