28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Björn Hallsson:

Í dag, þegar jeg talaði, gleymdi jeg einu atriði, sem snerti Norður-Múlasýslu, en háttv. þm. Dal. (B. J.) var svo góður að minna mig á það í síðustu ræðu sinni, og þakka jeg honum fyrir undirtektir hans þar.

Það er 9. liður í 15. greininni um 500 kr. styrkveitingu til bókasafnsins á Seyðisfirði, til þess að kaupa gamlar bækur. Háttv. Ed. setti þenna lið inn í fjárlögin, og virðist mjer hann ekki vel orðaður.

Fyrst og fremst er að geta þess, að þetta bókasafn heitir ekki bókasafn Seyðisfjarðar, heldur bókasafn Austuramtsins. Í öðru lagi má geta þess, að tilgangurinn til þessarar styrkbeiðni er ekki sá, að kaupa slitnar og brúkaðar bækur, heldur bækur, sem voru gefnar út áður en útgefendur fóru að senda söfnunum þær gefins, og þess vegna eru nú orðnar sumar gamlar, en óbrúkaðar samt. Þenna misskilning vildi jeg leiðrjetta, svo háttv. þm. sæu, hvernig ætlast er til að þessum styrk sje varið. Annara er þessi póstur ekki svo stór, að háttv. deild þurfi að blöskra hann, þar sem Austfirðingar hafa ekki gjört nje gjöra landssjóði þungar búsifjar í mentamálum, Þar er einungis einn skóli styrktur af landsfje, auk unglinga- og barnaskóla, sem sje Eiðaskólinn, og það eru nú ekki nema einar 2500 kr. á ári, sem honum hafa verið lagðar af landsfje, þar til nú, að háttv. Alþingi hefir verið svo sanngjarnt að hækka styrkinn í 3000 kr., sem jeg er þakklátur fyir. Mjer finst, að þinginu ætti ekki að blæða í augum, þó að við fengjum þenna styrk til bókasafns, sem er til almennra afnota fyrir allan Austfirðingafjórðung. En mjer fanst jeg verða var við dálítinn misskilning hjá háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) þar sem hann sagði, að hann hefði aldrei fengið annað en gamlar bækur af safninu, og hjelt, að þar væri ekki kostur á öðru.

Jeg þekki ekki lestrarfýsn háttv. þm., en góðar heimildir hefi jeg fyrir því, að hann hefir aldrei fengið annað að láni þar en Alþingistíðindin, sem hann ætlaði að nota til þess, að búa sig undir síðustu kosningabaráttu, og einar 2 bækur aðrar. En af þessu er ljóst, að hann getur ekki dæmt um safnið, því að hann þekkir það ekkert, og dæmir því eins og blindur maður um lit.

Sami maður sagði einnig, að fje þetta ætlaði bókasafnið að nota til þess, að kaupa fyrir »reyfara rómana« frá 18. öld, en þessu og því líku þarf ekki að svara; það fellur um sjált sig. Hann sagði einnig, að ekki þyrfti að bregða sjer um hlutdrægni, vegna þess, að hann væri að austan og öllu kunnugur. En jeg hugsa nú samt, að hægt sje að heimfæra það upp á hann, vegna þess, að safnið er á Seyðisfirði, en ekki á Eskifirði. Nábúakríturinn er oft töluverður. En illa situr á þessum háttv. þingmanni að snúast á móti þessu, þar sem hann, eins og aðrir Austfirðingar, er einn af eigendum safnsins, og ætti því að hafa áhuga á því, að efla það sem mest og best.

Jeg ætla svo ekki að eyða fleiri orðum um þetta mál, en vona, að þessi bókapóstur verði látinn standa; hann gefur ekkert eyðslufordæmi.

Jeg hefi áður minst á lið, sem fjárlaganefndin hjer í deildinni hefir ekki getað aðhylst, en sem kominn er frá Ed. En af því allmarga háttv. þm. vantaði þá í deildina, vil jeg leyfa mjer að minnast með örfáum orðum á þenna póst aftur. Jeg á hjer við fjárveitinguna til þokulúðursins á Dalatanga. Jeg er þakklátur 2. þm. S.-Múl. (G. E.) fyrir góðar undirtektir hans í þessu máli, svo sem líka var sjálfsagt, því að vitinn er á takmörkum Múlasýslnanna, og hafa, því kjósendur hans væntanlega gott af honum og lúðrinum, ef hann verður reistur við vitann. Og því var ekki nema eðlilegt, að hann mælti með honum, þótt hann þykist vera mikill sparnaðarmaður. Jeg tók það áðan fram, að mönnum væri mikill áhugi þar eystra á því að fá lúðurinn, og þeir hafa boðfram 1/3 kostnaðarins, ef landssjóður vill. leggja fram hitt. Það getur verið, að þess verði ekki kostur síðar, ef tilboðinu er hafnað nú. Nú vilja menn leggja . þetta á sig til þess að fá lúðurinn, en það getur verið, að síðar vilji menn ekki leggja fram þetta fje, og landssjóður verði þá að kosta hann að öllu. Þetta er nauðsynjamál, og jeg sje ekki, að það sje nein hætta að láta þessa fjárveitingu fylgja með, sjerstaklega þar sem hún er háð sömu athugasemd og aðrar fjárveitingar til vitamála, að hún komi ekki til framkvæmda, ef landssjóður hefir ekki handbært fje.