28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í B-deild Alþingistíðinda. (1240)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Sigurður Sigurðsson:
Það þykir heyra til að gjöra grein fyrir þeim brtt., sem menn flytja. Jeg er svo heppinn, eða óheppinn, að eiga nokkrar brtt., sem ef til vill væri rjettara að jeg víki nokkrum orðum að. En það vill nú svo vel til um þessar tillögur, að þær hafa allar verið áður til meðferðar hjer í deildinni og samþyktar. Auk þess hefir háttv. framsögum. (P. J.) tekið vel í þær, eða að minsta kosti látið í veðri vaka, að nefndin mundi ekki verða á móti þeim.
Þá hefir hæstv. ráðherra minst stuttlega á eina þeirra, þá þeirra, sem við erum báðir flutningsmenn að, sem sje brtt. á þgskj. 823, og þarf jeg því ekki að segja meira um hana.
Og loks hefir háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) tekið af mjer ómakið að mæla með brtt. á þgskj. 824, sem fer fram á það, að 20 þús. kr. styrkur til búnaðarfjelaganna verði veittur síðara árið. Auk þess hefir sami háttv. þm. lagt tveimur öðrum brtt., sem jeg er flutningsm. að, liðsyrði, og kann jeg honum bestu þakkir fyrir það.
Af þessum ástæðum öllum er það óþarfi fyrir mig að mæla sjerstaklega með þeim till., sem jeg þykist vita að verði vel tekið í deildinni.
Ástæðan til þess, að póstar þessir voru feldir í Ed., á ekki rót sína að rekja til þess, að Ed. sje þeim í sjálfu sjer óvinveitt, heldur miklu fremur og sjer í lagi til þeirrar góðu viðleitni nefndarinnar þar að spara, og í öðru lagi stafar þetta af því, að hún hefir ekki verið nægilega kunnug öllum þeim ástæðum, sem styðja og mæla með þeim fjárveitingum eða styrkjum, sem hjer er um að ræða.
Jeg get þó ekki látið vera að minnast á brtt. mína á þgskj. 822 um styrk til sjúklingsins, eða fábjánans, Oddnýjar Pálsdóttur. Jeg hefi nú lækkað upphæðina, og ætti það að mæla með því, að tillagan næði fram að ganga. Jeg veit að aðalástæðan hjá Ed. fyrir því að fella þennan lið, er ekki sú, að styrkurinn sje ekki nauðsynlegur, heldur hitt, að ef fje þetta sje veitt, þá geti það leitt til þess, að komið verði með fleiri sams konar tilmæli um að koma sjúklingum á »Den gellerske Anstalt« í Kaupmannahöfn. Þetta er auðvitað ekki útilokað, en í þessu sambandi vil jeg minnast á það, sem jeg hefi tekið fram áður, að fyrir þessu er fordæmi. Og svo er hitt, að vanalega er fólk, sem svona er ástatt fyrir, skammlíft.
Um brtt. á þgskj. 821, um 200 kr. styrk til húsmæðrakenslu á Eyrarbakka, skal jeg leyfa mjer að taka það fram, að hjer er alveg um sams konar og hliðstæða húsmæðrakenslu að ræða og á sjer stað á Ísafirði, þar sem er að ræða um kvenfjelagið Ósk, og sams konar fjárveitingu og til Jónínu Líndal á Akureyri. Jeg þykist vita, að aðalástæðan til þess, að tillagan fjell í Ed., hafi verið sú, að háttv. þm. hafi ekki verið kunnugt um, hvað hjer var um að ræða; en þeir hefðu getað fengið þær upplýsingar hjá mjer um það, að hjer er um sams konar kenslu að ræða og á Ísafirði og Akureyri, tveggja til þriggja mánaða kensluskeið fyrir húsmæður í sveit. Þar sem styrkurinn er svo lágur og beiðnin því hógvær, þá vænti jeg þess, að háttv. deild samþykki hann.
Háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) hefir komið fram með brtt. um það, að færa styrkinn til kvenfjelagsins Ósk niður um nokkur hundruð krónur. (Guðm. Eggerz: Hefi tekið hana aftur). Það eru einmitt meðmæli með því, að þessi styrkur verði samþyktur. Jeg veit, að hann hefir ekki komið með þá tillögu af neinum illvilja, heldur af lofsverðri tilraun til að spara. Hafi hann þökk fyrir það.
Jeg skal geta þess, að einna almennust mótbáran hjer á þinginu gegn því, að styrkja matreiðslukenslu, er sú, að ekki sje ástæða til þess nú í dýrtíðinni. En jeg vil minna menn á, að það er einmitt stór ástæða til þess að koma á þessari kenslu, á námsakeiðunum er húsmæðrunum, eða húsmæðraefnunum, kent að búa til mat, miklu praktískar og ódýrar en áður hefir átt sjer stað. Þetta mælir því með fjárveitingunni,en ekki í móti. Jeg vil minna menn á, að t. d. í ófriðarlöndunum er einmitt lögð áhersla á að kenna fólki að búa til ódýran mat núna í dýrtíðinni. Svo er það t. d. í Þýzkalandi. Þar er pjesum svo þúsundum skiftir dreift út um alt landið, um mataræði og matartilbúning, og stutt námaskeið haldin um það efni, og konur sendar út um sveitir, til þess að kenna almenningi, hvernig hægt er að gjöra sjer sem mestan og bestan mat úr litlu efni.
Um styrkinn til búnaðarfjelaganna þarf jeg ekki að tala frekar en búið er að gjöra.
Við 2. umræðu tók jeg fram ástæðurnar fyrir því, að ekki bæri að kippa styrknum burtu bæði árin, og nú hefir háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) bent á, að það gæti haft miður góðar afleiðingar.
Úr því að jeg er nú farinn að minnast á brtt, þá get jeg ekki leitt hjá mjer að geta um eina eða tvær brtt., sem liggja fyrir. Önnur er frá hæstv. ráðherra, um að athugas. við 20. lið 15. gr. falli burtu, þar sem svo er mælt fyrir, að styrknum til skálda og listamanna skuli úthlutað eftir tillögum sjerstakrar nefndar. Jafnvel þótt meiri hluti fjárlaganefndar geti ekki aðhylst þessa tillögu, þá óska jeg að hún verði samþykt, og tel illa farið, ef svo verður ekki. Jeg tel athugasemdina þýðingarlausa, bæði með tilliti til fjárveitingarinnar, sem hjer er um að ræða, og einnig að öðru leyti. Mjer finst, að hver og einn ráðherra eigi að hafa veg og vanda af úthlutun þessa styrks. Jeg vil ekki, að verið sje að dreifa ábyrgðinni á fleiri hendur. Þetta er mín bjargföst skoðun.
Hin brtt., sem jeg vildi minnast á, er önnur brtt. sem fjárlaganefnd hefir gjört við 15. gr., sem sje sú, að fella. niður 2000 kr. fjárveitingu til umbóta á hinum fornhelga stað, Þingvöllum. Fjárlaganefndin leggur til að fella þennan lið burtu, og aðalástæða til þess er sú, að nú liggi ekki fyrir nein glögg áætlun um þetta verk. Jeg þori að fullyrða, að þessi upphæð, sem hjer er um að ræða, er ófullnægjandi, og hins vegar verkinu svo háttað, að það þarf helst að vinna það í einu lagi. (Matthías Ólafsson: Veit þingmaðurinn hvað þarf að gjöra?). Já, jeg er því miklu kunnugri en háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). Það þarf að gjöra 2000 m. langa girðingu, leggja nýjan veg, 800 m., að vísu í tvennu lagi, grafa upp farveg Öxarár á 375 m. löngum kafla. Um ekkert af þessum atriðum er til áætlun, en það er áreiðanlegt, að þessi upphæð, 2000 kr., er ófullnægjandi, enda viðurkent af fornmenjaverðinum og þeim þingmönnum, sem bera þessa fjárveitingu fyrir brjósti.
Enn fremur vil jeg minna á, að næsta ár verður girðingaefni afardýrt, og því tel jeg hyggilegt að fresta verkinu. Þar með er þó ekki sagt, að verkið sje ekki nauðsynlegt, þegar það er betur undirbúið, en það mun naumast geta komið til framkvæmda, fyrr en undirbúningur er gjörður, og girðingarefni fæst ódýrara. Eins og nú stendur, er það miklum erfiðleikum bundið að ná í það, enda naumast fáanlegt.
Þá á jeg smávægilega brtt. á þgskj. 826, við 6. lið 21. greinar, og fer hún fram á, að sú lánsheimild, sem þar erum að ræða, sje ekki veitt á nafn. Ef þessi maður getur ekki notað lánsheimildina, er ekki sagt, að aðrir geti ekki fært sjer hana í nyt og því rjettara að binda hana ekki við nafn. Jeg tel víst að hæstv. ráðherra veiti lánið, ef hann sjer sjer það fært, ef til vill þessum manni, er hann hefir komið sjer í samband við prentsmiðju, sem jeg tel sjálfsagt að hann gjöri, eða öðrum, sem eitthvað eru á veg komnir með að koma prentmyndagjörð á stofn og trygging er fyrir því, að hún geti komið almenningi að notum. Annars er mjer þetta ekki kappsmál, en kann einmitt betur við að styrkveitingar sjeu sem minst bundar við nöfn einstakra manna.
Jeg ætla ekki að tala neitt frekar um hinar einstöku brtt., sem komnar eru fram. Jeg get sagt, að jeg mun sem fyrr fylgja þeim, sem vilja fella niður fjárveitingar, sem eru óþarfar eða þola bið. Brtt. fjárlaganefndar miða að því, að spara um 20 þús. kr., eins og háttv. framsm. sagði, og fara flestar í þá átt að færa fjárveitingarnar sem næst því, sem þær voru, þegar frumv. var samþykt hjer við 3. umræðu, en taka þó hins vegar tillit til framkomins vilja Ed. og reyna að mæta henni á miðri leið. Jeg skal ekkert um það dæma, hvernig nefndinni hefir tekist í þessu efni, en vona hins vegar að brtt. beri þess vott, að henni hafi verið þetta ríkt í huga. Aftur hafa komið fram tillögur frá einstökum mönnum, sem miða til aukinna útgjalda, og aðrar, en þó færri, sem sparnaðar miða. Þeir, sem þær hafa flutt, eiga þökk og heiður skilið fyrir, og mun jeg fylgja þeim að málum, sem frekast jeg sje mjer fært.