28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í B-deild Alþingistíðinda. (1247)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Benedikt Sveinsson:

Mjer fanst háttvirtum 1. þm. Rvk. (S. B.) vera eitthvað klaksárt af því, sem jeg sagði um lánveitinguna til G. E. Guðmundssonar, eins og það gæti orðið til að spilla kosningu hans hjer í bænum. Jeg skýrði að eins frá því, að almenningur hjer í bæ væri þessu máli mjög fylgjandi. Hann sagði nú, að hann vildi ekki beinlínis leggja á móti þessari fjárveitingu, en hitt væri víst, að það bætti ekki úr þörfum manna hjer í haust. Hann mælti jafnframt fastlega með 25 þús. kr. styrk handa Námufjelaginu til kolanámurannsókna, og ætti það í samband við kolaekluna, sem af ófriðnum stafar. Ef það gæti bætt úr þörfum manna hjer í haust, þá er ekki síður ástæða til að ætla að árangur verði af lánveitingunni til G. E. Guðmundssonar.

Háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.) mintist á., að Velferðarnefndin hefði pantað 60 smálestir af þessum kolum hjá G. E. Guðmundssyni, en ekki getað fengið þau. Sannleikurinn er sá, að það var ekki fyrr en um mitt sumar, sem þetta gjörðist, þegar ómögulegt var að fá skáp til að sækja þessar 60 smálestir. Eins og menn muna, auglýsti Guðmundur þá eftir skipi, en það reyndist ómögulegt að fá nokkurt skip. Þó fjekk hann um síðir vjelarbát til að sækja kol, en báturinn bar ekki nema 10 smálestir. Þegar kolin voru svo komin hingað, fór Guðmundur á fund landsstjórnarinnar og tilkynti henni að kolin væru komin. Landritari varð fyrir svörum, og þótti honum þetta of lítið, sagði að Velferðarnefndina munaði ekkert um það og Guðmundur mætti selja þessar tíu smálestir hverjum sem hann vildi.

Háttv. 1. þm. Rvk. gat þess í þessu sambandi, að það væri ekki hægt að fullnægja kröfum Reykvíkinga með kolum úr þessari námu. Þetta getur hann ekkert fullyrt um, því að hann þekkir alls ekki þessa kolanámu og veit ekki, hvað mikil kol hún kann að hafa að geyma. En þótt svo væri, að hún fullnægði ekki bænum, þá gæti bænum orðið góður styrkur að því, að fá þaðan kol til drýginda. Guðmundur segist hafa fundið þarna kolalag, sem hann býst við að borgi sig að vinna og hann hefir flutt kol þaðan, sem mönnum hafa líkað vel, eins og sjá má af dagblöðunum.

Viðvíkjandi veðinu, sem hæstv. ráðherra spurði um, skal jeg taka það fram, að námurjettindi hefir lánbeiðandi fengið til 50 ára í Sjöundárlandi, og eins hinum megin fjallanna í Patreksfirði. Þetta á að setja að veði fyrir láninu, og auk þess mannvirki öll og verkfæri, sem í sambandi við kolanámureksturinn standa. Þingið veit því, að hverju hjer er að ganga, og eins og jeg hefi áður bent á, þá er þetta nokkurs konar árbótarráðstöfun, jafnframt því að styðja þennan duglega mann, sem hefir lagt mikið í sölurnar, til þess að koma af stað þessum atvinnuvegi í landinu.