10.07.1915
Neðri deild: 3. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í B-deild Alþingistíðinda. (1253)
56. mál, fjáraukalög 1914 og 1915
Ráðherra:
Hjer get jeg verið mjög stuttorður, vegna þess, að jeg hefi getið um þetta mál áður í sambandi við annannað mál, fjárlagafrumv. Í fjáraukalagafrumvarpinu er farið fram á það, að veitt verði fje til þeirra gjalda, sem talin eru í 2.–8. gr. Jeg vænti að sama nefnd taki þetta frumv. til meðferðar eins og hitt, og hefi svo ekki meira að segja að svo komnu.