20.07.1915
Efri deild: 11. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í B-deild Alþingistíðinda. (126)
28. mál, bæjarstjórn í Ísafjarðarkaupstað
Framsögum. (Sigurður Stefánsson) :
Jeg skal ekki þreyta hv. deild með langri ræðu, því nefndin hefir tekið það fram, sem þörf er á, í nefndarálitinu, Jeg vil að eins benda á, að frumvarp þetta hefir sætt alveg sjerstakri meðferð, og vandaðri útbúning en venja er til um þau mál, þar sem bæjarstjórn Ísafjarðarkaupstaðar hefir snúið sjer til landstjórnarinnar og beðið hana fyrir málið. Þetta sýnir það ljóslega, að málið er sjerstakt áhugamál bæjarstjórnarinnar, þar sem hún hefir farið þessa leið, til þess að tryggja framgang frumvarpsins.
Hvað frumvarpið snertir að öðru leyti, þá skal jeg geta þess, að helsta nýmælið í frv. er stytting kjörtímabilsins úr 6 árum í 3 ár; er sú breyting lögleidd að eins í einum kaupstaðanna, Seyðisfirði. Annars skal jeg geta þess, að bæjarstjórnin á Ísafirði var í fyrstu treg til þessarar og fleiri breytinga á bæjarstjórnarlögum, sem fram á er farið í frumvarpi þessu, en nú virðist henni vera það sjerstakt áhugamál að frumv. nái fram að ganga, eins og eg hefi áður sýnt fram á.
Að öðru leyti leyfi jeg mjer að vísa til nefndarálitsins, og vil því ekki tefja háttv. deild með lengri ræðu, frá því að hlusta á hinar uppbyggilegu ræður í neðri deild um stjórnarskrármálið.