06.09.1915
Neðri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í B-deild Alþingistíðinda. (1294)
112. mál, fjáraukalög 1912 og 1913
Framsm. (Magnús Kristjánsson):
Þetta frumv., sem hjer liggur fyrir, er komið hingað aftur frá háttv. Ed., og hefir hún haft lítið við það að athuga. Sumar brtt. hennar getum við nefndarmenn fallist á, en sumar ekki. Jeg skal nú gjöra grein fyrir þeim, hverri út af fyrir sig.
Nefndin í háttv. Ed. hefir látið þess getið, að hún telji nauðsynlegt, að þess sje krafist, að stjórnin verji aldrei meiru fje til nokkurs fyrirtækis en henni er heimilt samkvæmt lögum, hvort árið fyrir sig, þ. e. a. s. að stjórnin megi ekki fara fjárveitingu frá öðru ári fjárhagstímabilsins til hins. Við nefndarmenn hjer í deildinni getum ekki fallist á þessa skoðun háttv. Ed Við lítum svo á, að oft geti verið nauðsynlegt, þegar um vegagjörðir eða önnur mann virki er að ræða, að færa þannig á milli og við sjáum ekkert á móti því, þótt meira fje sje notað fyrra árið en heimild er til, svo framarlega sem útborgunin í heild sinni fer ekki fram úr fjárveitingunni fyrir fjárhagstímabilið. Enn fremur viljum við taka það fram, að við sjáum ekkert því til fyrirstöðu, að sparist fje á einum lið, þá megi verja því til annara, t. d. vegagjörða, ef svo stendur á, að vegabótin komi með því að betri notum, þannig að hún verði svo langt komin að hún geti þegar komið að notum. Um þetta skal jeg svo ekki fjölyrða frekar í bráð. Vildi einungis að það kæmi fram, hvernig við lítum á málið.
Þá skal jeg minnast á brtt. þær, sem háttv. Ed. hefir gjört á frumv. Það er þá í fyrsta lagi, brtt. við 5. gr. B. III. Þar hefir annaðhvort misprentast eða misskrifast, kr. 2982,08 kr. fyrir 2972,08 kr., það sem sparast hafði á fjárhagstímabilinu af því fje, sem veitt var til þjóðvega. Þetta er auðvitað sjálfsagt að leiðrjetta, bæði þar í sjálfum liðnum og einnig samlagningunni.
Þá er næsta brtt. við 6. gr. IV. Það er fjárveitingin til Kennaraskólans. Útgjöldin til hans hafa árið 1913 farið samtals kr. 303,11 fram úr áætlun, en aukafjárveitingar hefir verið leitað fyrir kr. 248,63. Mismunurinn, kr. 54,48, var þannig til kominn, að við töldum ekki ástæðu til að leitað væri aukafjárveitingar fyrir honum. Þessa upphæð vill nefndin í Ed. veita á fjáraukalögunum. Þótt okkur finnist það óþarfi, þá viljum við þó ekki gjöra það að ágreiningsefni, og leggjum því til, að þetta verði látið svo búið standa.
Þá er nú upptalið það af brtt. háttv. Ed., sem við getum fallist á. Næstu brtt. eru þannig vaxnar, að við sjáum okkur ekki fært að fallast á þær. Háttv. Ed. vill láta bæta aftan við 6. gr. til sundkenslu í Reykjavík, 600 kr. Á þessari tiltögu stendur svo, að árið 1912 var útborgaður styrkur til sundkenslu í Reykjavík 900 kr., en fjárveitingin sama ár nam ekki nema 300 kr. En á þessu stóð svo, að styrkurinn, sem veittur var árin 1910 og 1911 hafði ekki verið greiddur og engin skýrsla lá fyrir um sundkensluna fyrr en eftir áramót. Þegar stjórnarráðið hafði 1912 fengið fullnægjandi skýrslur um kensluna fyrir öll árin, og hafði fullvissað sig um að áskilin fjárupphæð hefði verið greidd úr bæjarsjóði Reykjavíkur, þá taldi það sjer heimilt að greiða alt fjeð. Við föllumst að öllu leyti á skoðun stjórnarráðsins í þessu efni, og leggjum því til, að þetta verði felt úr frumvarpinu. Okkur finst það vera nokkuð hart, að menn fái ekki greitt það, sem þeim er veitt í fjárlögunum þótt það dragist fyrir þeim fram yfir áramót að vitja þess, eða þeir eiga óhægt með að gefa á fullnægjandi skýrslur fyrir. þann tíma.
Þá er síðasta brtt. háttv. Ed. við 8. gr., 27. lið, sem er um námsstyrk til iðnaðarmanna erlendis. Við getum ekki heldur fallist á þessa brtt. Um þetta er alt hið sama að segja og sundkensluna. Styrkurinn var ekki fullgreiddur við áramót; það kom í ljós, að þá stóðu eftir 225 kr., og var það þá borgað út eftir áramótin.
Nefndin hefir því komið fram með brtt. við þessa tvo liði, og væntum við að þær verði báðar samþyktar. Þótt þetta sje í rauninni ekki sjerlega þýðingarmikið, þá viljum við þó eindregið láta uppi þá skoðun, að stjórnin hafi fulla heimild til að borga út slíkar fjárveitingar sem þessar, þótt eftir áramót sje.
Jeg álít þá að það sje ekki fleira, sem jeg þurfi að taka fram og vona að hv. deild fallist á skoðun okkar í þessu máli.