10.07.1915
Efri deild: 3. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í B-deild Alþingistíðinda. (131)
33. mál, viðskiptabréfaógilding
Ráðherra:
Í núgildandi lögum er ekki vafalaus heimild til þess að veita leyfisbrjef til ógildingardóms á ýmsum viðskiftabrjefum. Lög heimila að vísu, að slík leyfisbrjef sjeu veitt, ef um skuldabrjef með veði í fasteign er að ræða, eða víxla, tjekka, farmskírteini og ýms opinber peningaskjól; þar að auki er sjerstök heimild í núgildandi lögum, til ógildingar sparisjóðarbóka. Hins vegar vantar slíka ógildingarheimild um önnur brjef, t. d. skuldabrjef, sem ekki er veð fyrir, hlutabrjef, heimildarskjöl ýms, (legimationspapirer) o. s. frv. Það hefir komið fyrir, að sótt hefir verið til stjórnarráðsins um leyfisbrjef til ógildingardóma á ýmsum skjölum, og hefir stjórnarráðið að vísu álitið heimilt að veita slíkt leyfi, Það er vafasamt, hvort dómstólarnir telja stjórninni slíkt heimilt, enda hefir nú nýlega verið kveðinn upp dómur í þá átt, að neitað er um ógilding. Það er að vísu talsvert vafamál, hvort þessi dómur er á góðum rökum bygður, en dómstólarnir halda nú fram þessum skilningi á lögunum, og fyrir þeim verða allir að beygja sig. Það er þess vegna bráðnauðsynlegt, að löggjöfin verði endurbætt í þessu efni, og vona jeg því, að hv. Ed. taki þessu frv. vel og greiði fyrir því á sem bestan hátt.