12.07.1915
Neðri deild: 4. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)

43. mál, verðlag á vörum

Ráðherra :

Nokkru eftir að stríðið hófst, tók vöruverð mjög að hækka, og urðu menn þá hræddir um, að kaupsýslumenn myndu nota sjer verslunarástand það, er atriðið skapaði, til þess að setja það upp úr öllu valdi. Þess vegna voru þá sett bráðabirgðalög 5. okt. 1914 um verðlaganefnd, með ráði Velferðarnefndarinnar, sem þáverandi stjórn bar sig saman við. Svo var skipuð 5 manna nefnd, sem starfað hefir síðan, þegar málefni hafa til verið og borin undir hana. Er þetta frv. nú lagt fyrir þingið samkvæmt 11. grein stjórnarskrárinnar.