26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í B-deild Alþingistíðinda. (1339)
43. mál, verðlag á vörum
Guðmundur Hannesson :
Þótt það sje hart, að fara að finna að gjörðum nefndar, sem vinnur eflaust starf sitt samviskusamlega, og þar á ofan ókeypis, þá verð jeg þó að geta þess, að margir líta svo á, sem nefnd þessi hafi ekki komið að tilætluðum notum.
Þannig hefir, að minsta kosti sumstaðar, kaupmönnum, er fengið höfðu miklar birgðir rjett áður en stríðið hófst, haldist uppi að selja vörurnar með tilfinnanlega hækkuðu verði. Aftur hefir nefndin, að því er mjer hefir verið skýrt frá, lagt verð á stöku vörutegund, sem munað hefir nálega engu frá söluverði (t. d. kaffibæti), eða svo sem 1 eða 2 aurum á pundi. Tveir þingmenn hafa og skýrt mjer frá, að komið hafi fyrir, að verð nefndarinnar hafi verið hærra en söluverðið á staðnum. Þó að þetta kunni litlu að muna, þá er samt óheppilegt, að slíkt komi fyrir. Eftir brjefum úr mínu hjeraði að dæma, er það álit margra, að nefndin hafi alls ekki komið að tilætluðum notum.
Mjer fanst rjett að geta um þetta. Eigi að síður þykir mjer það óvarlegt, að vera án slíkrar nefndar, og greiði því atkvæði með frumvarpinu.