26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í B-deild Alþingistíðinda. (1342)
43. mál, verðlag á vörum
Sveinn Björnsson:
Háttv. frsm. (Þ. J.) nefndi sem dæmi tilfelli, sem eftir skoðun nefndarinnar hlyti að falla undir nefndarálitið, nefnilega ef framleiðendur settu upp verðið, svo óhæfilegt væri, þá myndu þeir þurfa að hafa útsölu í bæjum. Hann tók og fram, að það væri rjett hjá mjer, að álit nefndarinuar mætti ekki skoðast sem ófrávíkjanleg mælisnúra. Það hefir aldrei verið hugmyndin, að verðlagenefndin ætti að hafa heimild til þess að svifta menn eignarrjetti, og er það helber misskilningur, ef menn hafa nokkurn tíma haldið það. En menn verða um fram alt að reyna að gjöra sjer vel ljóst, hvað eignarrjettur er. Sumir halda jafnvel, að eignarrjetturinn geti. náð til einhvers væntanlegs ágóða, sem hlaupið gæti á snærið hjá manni, ef kringumstæðunum væri nú þannig og þannig varið. En hjer er ekki farið lengra og ekki komið nær eignarrjettinum en eðlilegt er, og meira að segja sjálfsagt er og skylt.
Jeg vildi svo víkja fáeinum orðum til háttv. þm. Mýr. (J. E.). Hann kvað menn mega vara sig á því, að fara að láta löggjöfina skifta sjer af frjálsum viðskiftum einstaklingsins. Þetta er að fara út í algjörðar öfgar, enda veit jeg að háttv. þm. meinar ekki eitt einasta orð af þessu, þegar hann fer að athuga nánar, hvað hann hefir sagt. Öll löggjöf, hvers landa sem er, skiftir sjer af frjálsræði einstaklingsins að meira eða minna leyti. Hjelt jeg að þetta væri svo alkunnugt, að eigi þyrfti að taka slíkt fram. Jeg held því annars fram, að þetta málefni sje þannig lagað, að ekki sje grípið í taumana, nema ef neyð kallar að og undir sjerstökum kringumafstæðum.