26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (1352)
40. mál, gullforði Íslandsbanka
Framsm. (Björn Kristjánsson):
Mjer nægir að vísa til nefndarálitsins þgskj. 77, sem leggur til, að þessi lög verði látin gilda til ákveðins tíma, eða til 1. des. 1917, nema löggjafarvaldið gjöri aðra ráðstöfun fyrr. Þessi breyting á stjórnarfrv. stafar aðallega af því, að Íslandsbanki óskaði eftir henni, til þess að hann gæti hagað sjer þar eftir. Og þar sem nú lítur út fyrir, að ófriðurinn standi lengi, enn, þá sýnist ekki neitt í hættu, þó að ákveðið sje að lögin skuli gilda þetta lengi. Auðvitað gengur nefndin út frá því, að lögmæltur gullforði sje til tryggingar hjer í landi, þrátt fyrir það, þó að seðlarnir verði svo lengi óinnleysanlegir. Eins telur nefndin sjálfsagt, að bankanum verði skilað gullforðanum aftur, þegar seðlar hans verða gjörðir innleysanlegir, en þar sem þetta felst í fyrri lögunum, þá taldi nefndin ekki beina þörf .á að taka það upp í þetta frv. Annað hefi jeg ekki ástæðu til að taka fram. Jeg vona, að stjórnin sjái ekki neitt á móti því, að þessi breyting verði gjörð.