12.08.1915
Neðri deild: 31. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í B-deild Alþingistíðinda. (1370)
59. mál, vélstjóraskóli í Reykjavík
Framsögum. (Matthías Ólafsson) :
Þegar þetta mál var til umsagnar í nefndinni, var enginn ágreiningur um það þar. Nefndin var öll á einu máli um það, að samþykkja frumvarpið óbreytt. En svo kemur á síðustu stundu fram brtt. frá háttv. formanni þessarar nefndar (G. E.). Jeg tala ekki um, hvað slíkt er óviðeigandi. Breytingartill. þessa manns er um það, að 8. 1. 2. gr. falli burt úr frumvarpinu. Það er um kröfuna, að nemendur geti þýtt ljettan kafla verkfræðilegs efnis á dönsku. Þetta er sama skilyrðið, eins og með enskuna. Um þetta atriði varð enginn ágreiningur í nefndinni, og jeg vissi ekki til, að neinum nefndarmanna væri þetta þyrnir í augum. En sje það tilgangurinn, að hætt verði að kenna dönsku í skólum, þá ætti háttv. formaður nefndarinnar (G. E.) að reyna að stemma á að ósi og byrja á okkar æðri mentastofnunum. Jeg tel þetta sem sagt hjegómamál, hreinasta þvaður, sem ekki ætti að vera talað um á þingi.