21.07.1915
Neðri deild: 12. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (1399)

30. mál, vörutollaframlenging

Framsm. (Björn Kristjánsson):

Eins og nefndarálitið ber með sjer, leggur nefndin það til öll í einu hljóði, að frv. verði samþykt. Og enda þótt annannað frv. sje hjer á ferðinni, sem þessu máli kemur við, frv. um verðtoll, þá telur nefndin þetta frv. engu að síður nauðsynlegt og sjálfsagt, að samþ. þetta frumvarp, því að þótt hitt frv. fengi framgang, þá kæmist það aldrei í gagn til fullnustu frá þessu þingi.

Jeg sagði víst við 1. umr., að mjer þætti ekki ástæða til, að binda framlengingartíma þessara laga við 1. jan. 1917, en ekki mun jeg þó gjöra ágreining út úr því ákvæði frumvarpsins.