21.07.1915
Neðri deild: 12. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)

30. mál, vörutollaframlenging

Pjetur Jónsson:

Um leið og þetta frv. kemur til umræðu hjer, get jeg ekki stilt mig um að segja nokkur orð, þótt ef til vill eigi þau ekki sjerstaklega heima við 2. umræðu.

Þegar þetta mál, vörutollsmálið, var hjer fyrst til umræðu á þinginu 1912 þá taldi jeg heppilegra, að miða tollinn við verð vörunnar en þunga hennar, og þeirri skoðun minni hefi jeg ekki breytt enn þá. Hinn tollurinn varð nú samt ofan á þá, og síðan hefir verið reynt að laga hann svo, að hann kæmi þolanlega niður.

Nú er hjer fram komið frv., sem er sama efnis og það, sem vjer verðtollsmenn vorum með 1912. (Bjarni Jónsson: Það er sama frv., eins og það var þá við 3. umr.). Nú skyldu menn ef til vill ætla, þar sem jeg var einn af flutningsmönnum þess, að jeg vilji nú ekki fallast á það, að framlengja þungatollinn, heldur hallast þegar á sveif með hinu frumvarpinu. Það liggur svo beint við. En jeg lít nú svo á, að úr því að vörutollurinn komst á, og úr því að skattamálin hafa ekkert verið undir búin af stjórninni, þá verði því varla komið við, að gjöra neinar róttækar breytingar á toll- og skattamálum á þessu þingi, og þá vil jeg ekki eyða tímanum í gagnslaust þref. Jeg hygg ekki, að verðtollurinn nái fram að ganga nú, og þetta gjörir það að verkum, að jeg get ekki verið með framgangi verðtollsfrumvarpsins að þessu sinni. En hins vegar hefir mjer hugsast, að nefndin gæti unnið að verðtollsfrumvarpinu til undirbúnings í framtíðinni; því hefi jeg ekki á móti að minsta kosti. En nú mun verða samþykt framlenging vörutollslaganna hjer í deildinni, og jeg get ekki verið með því, að hafa tvenn lög samsíða, önnur um þungatoll og hin um verðtoll.

Mig langaði mjög mikið til, ef jeg hefði treyst mjer til þess, að flytja hjer á þinginu skattamálin á þeim grundvelli, sem milliþinganefndin frá 1908 hefir lagt. Jeg álít afar nauðsynlegt, að koma okkar beinu sköttum í sams konar horf og nú tíðkast hjá öðrum þjóðum, þar sem best er, og það sem fyrst. Jeg skal að vísu játa, að af beinum sköttum er tæpast hægt að vænta mikilla tekna fyrst um sinn. En það er trú mín, að smátt og smátt megi þoka þeim upp og í fyrri rúm, og þá því fyrr, sem fyrr er byrjað. Og í sambandi við beinu skattana á nýjum grundvelli, vil jeg, að verðtollurinn sje tekinn til meðferðar. Ætti þingið nú að skora á stjórnina að taka mál þessi til með ferðar til næsta þinga. Það er ekki minni þörf fyrir sveitar- og bæjarfjelögin á nýjum skattalögum í þá átt, sem milliþinganefndin lagði til. Rjettlátir, beinir skattar með tilstyrk hæfilegs verðtolls, er það, sem jeg vil að komið sje á.

Mjer finst skattamálin vera mikilsvert menningaratriði, sem við verðum að taka fyrir sem fyrst, og álít stórt spor stigið í menningaráttina með innleiðslu skatta, bygðum á þeim »principum«, sem nú er viðurkend fullkomnust um allan heim.