04.08.1915
Neðri deild: 24. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (1416)

30. mál, vörutollaframlenging

Guðmundur Eggerz:

Jeg vil að eins skjóta því til háttv. nefndar, að síðan vörutollalögin voru samþykt á þingi 1912, hafa á hverju þingi frá því verið gjörðar breytingar á þeim. Þetta er orðið mönnum, sem lögin eiga að nota, til mjög mikilla óþæginda. Kaupmenn og ýmsir aðrir kvarta yfir því, að löggjöfin sje komin í smá búta og því erfitt að átta sig á, hvað sjeu gildandi lög.

Jeg vil því beina þeirri ósk til háttv. nefndar, að hún annist um, að öllum breytingum, er á vörutollinum hafa orðið, verði safnað í einn texta. Háttv. nefnd ætti að athuga þetta, því að þetta er ekki þýðingarlaust spursmál.