03.08.1915
Neðri deild: 23. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)

51. mál, sparisjóðir

Guðmundur Eggerz:

Mjer virtist svo, sem hæstv. forseti væri að setja ofan í við okkur fyrir það, að tillögurnar á þgskj. 155 væru svipaðar og þær á þgskj. 149, og vil jeg ekki taka því þegjandi, þótt það komi úr forsetastóli, því að þetta er ekki rjettlát aðfinsla. Þegar við, háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.) og jeg, vorum að semja brtt. okkar, þá hugsuðum við okkur að skírskota til þgskj. 97, því að þar er sama efni í sumum greinunum og á þgskj. 155, en hins vegar er mismunur á sumum greinum. Við sáum því, að tilvísunin í þgskj. 97 mundi hafa verið villandi við atkvæðagreiðslu, og hættum þess vegna við hana. Jeg veit að hæstv. forseti er svo sanngjarn maður, að hann sjer það nú, að þetta var óþarfi af honum. (Pjetur Jónsson: Það var það ekki.) Háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) þekkir þetta ekkert og botnar ekki í svo margbrotnu nál. sem þetta er.

Jeg mun nú sjálfsagt verða stuttorður í þessari fyrstu ræðu minni. Nefndarálit okkar er ítarlegt, og jeg get látið mjer að mestu nægja að skírskota til þess. Þó vildi jeg segja örfá orð um brtt.

Fyrsta brtt. er við 12 gr. Þar leggjum við til, að felt sje burtu ákvæðið um að bóka lánssynjanir. Okkur finst það vera óþarfa skrifinska, að vera að bóka það í hvert sinn, sem maður kemur og biður um 25 eða 50 kr. víxillán og fær ekki neitt, enda hugsa jeg að það sje mönnum oft nógu bagalegt, að láta neita sjer um lán, þótt ekki verið að skrásetja það líka, að þeim hafi verið neitað.

Þá er brtt. við 13. gr. Jeg skal taka það fram, að þótt við hefðum kosið að láta hana og 17. gr. óhreyfðar, þá er okkur það ekki kappsmál. Við höfum bæði nú og fyrr teygt okkur sem lengst við gátum til samkomulags. Enn er brtt. við 21. gr. Þar stendur í frumv. stjórnarinnar, að stjórnarráðið ákveði o. s. frv., ef sparisjóður legst niður. Okkur þótti eðlilegra að sýslunefnd eða bæjarstjórn gjörði það.

Þá kem jeg nú að aðalbrtt. við 22. og 23. gr., eða þessum alkunna eftirlitsmanni. Því hefir verið haldið fram, að ef honum sje slept með öllu, þá sje þetta frumv. þýðingarlaust. Þetta getum við ómögulega fallist á. Menn verða að gæta þess, að hingað til hefir því verið svo varið, að engin lög hafa verið til um fyrirkomulag sparisjóðanna hjer á landi, því að þótt til sjeu lög frá 1874, sem að eins heimila stjórninni að veita sparisjóðum viss hlunnindi, ef þeir sækja um þau, þá er það sama og ekkert. Þeim ber engin skylda til að sækja um þessi hlunnindi; og engin nánari ákvæði eru til um skipulagið.

Hvað sem umsjónarmanninum líður, þá er þó hjer í þessu frumv. farið fram á það, að koma á föstu lögskipuðu fyrirkomulagi við sparisjóðina, og í því álítum við að sje út af fyrir sig meiri trygging en í umsjónarmanninum. Hjer koma fyrirmæli um það, hvernig bókfærslunni skuli hagað og fyrirmyndir af öllum skjölum o. s. frv., og alt verður þetta eins um land alt, og skýrslur verða sendar til stjórnarráðsins um rekstur sjóðanna, svo að það getur alt af haft þar hönd í bagga með. Þegar búið var að skrifa nefndarálitið, var spursmál, hvort ekki væri rjettast, úr því að við gátum ekki orðið samdóma um umsjónarmanninn, að fella þá alt það drasl í burtu og koma svo með sjerstakt frumv. um eftirlit með sparisjóðunum. Þá hefði mátt rífast um umsjónarmanninn, en við leggjum áherslu á það, að þetta frv. sje gott og gagnlegt, hvort sem hann verður nokkur eða enginn.

Það er alls ekki rjett, sem stendur hjer í einu nefndaráliti á þgskj. 149, að við álítum alt eftirlit óþarft. Jeg fullyrði einmitt, að við álítum báðir mjög nauðsynlegt, að það sje trygt. En þó að einn maður sje látinn ferðast um alt landið í því skyni og honum borguð fyrir það 1200 kr. laun á ári, þá álítum við, að það eftirlit myndi verða lítils virði. Fyrst og fremst fengist nú ekki nema ungur og óreyndur maður fyrir þessi laun, og svo myndi hann ekki tolla lengi í stöðunni, og væri það mjög óheppilegt, ef ekki gegndi henni sami maður í mörg ár, heldur sífelt nýr og nýr, óreyndur maður og ókunnugur. Samt höfum við nú, til þess að reyna að mæta þeim á miðri leið, sem láta sjer líka stjórnarfrumvarpið, gengið inn á það, að stjórninni skuli vera heimilt að hafa eftirlit sjerstaklega með sjóðum, er nemi 100 þús. kr. eða meira, og láta bankafróðan mann athuga þá. Við vitum, að til eru hjer á landi 3 eða 4 sparisjóðir svo stórir, og ef gengið er inn á þetta eftirlit með aðalsjóðunum, þá er ekki hægt að segja, að við höfum kastað öllu eftirliti burt. Ef stjórnin vildi, og það kæmi í ljós við rannsóknina á þessum sjóðum, að frekara eftirlit þyrfti, þá er hægur hjá að koma með frumv. í þessa átt, hve nær sem er, en meðan það er ósannað, getum við ekki teygt okkur lengra en þetta til samkomulags. Og ef jeg man rjett, þá var líka háttv. framsögum (G. H.) þessu meðmæltur um eitt skeið á þinginu í fyrra. Það má segja, að þetta stærðartakmark á sjóðunum, 100 þús. kr., sje af handahófi, en einhvers staðar verða takmörkin að vera, og að skipa mann til eftirlitsins með svona lágum launum, er alveg þýðingarlaust.