17.08.1915
Neðri deild: 35. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)
100. mál, seðlaauki Íslandsbanka
Framsm. minni hl. (Jón Magnússon) :
Eftir niðurstöðu þeirri, er bæði meiri og minni hluti nefndarinnar hafa komist að, mætti halda, að nefndarhlutunum bæri eigi svo mikið á milli. Meiri hlutinn vill fallast á það, að Íslandsbanka sje heimiluð hálf milj. kr. seðlaaukning í 2 ár, en minni hlutinn ræður til, að veita 1 milj. kr. aukningu á sama tíma. Og hjer er að eins um bráðabirgðaráðstöfun að ræða, og það hlýtur að vera nokkurt álitamál, hvar setja eigi takmörkin fyrir útgáfu ógulltrygðra seðla og gjaldfrjálsra að meira eða minna leyti. Auðvitað er þetta nokkuð örðugra hjer á landi, með því að reynsla vor í þessum efnum er svo stutt. Samt virðist minni hlutanum það sannað með fullum rökum, að viðskiftaþörfin heimti nú mikla seðlaaukningu, áreiðanlega meiri en meiri hlutinn vill veita nú. Þörfin á seðlaaukningu var og viðurkend í áliti meiri hluta nefndarinnar í Nd. í þessu máli í fyrra. Síðan hafa komið fram órækar sannanir fyrir því, að seðlafúlgur bankanna hjer eru litlar er bankarnir urðu að flytja inn meira en ½ miljón erlendra seðla í fyrra. Það virðist minni hluta nefndarinnar auðsætt, að hljóti að vera mjög óheppilegt, að þurfa að nota erlenda seðla, sem þar að auki, eins og ástandið er nú í heiminum, geta verið ótryggari en seðlar banka hjer. Jeg legg að vísu ekki mikla áherslu á 2% gjaldið til landssjóðs, þótt það sjeu líka peningar, en víst er um það, að landið hefir engar tekjur af erlendu seðlunum.
Það er í rauninni óþarfi að fara að deila um það, hvort æskilegt eða nauðsynlegt sje, að hafa mótaða peninga í umferð í landinu, jafnt seðlum eða frekar. Það er hætt við því, þótt reynt væri að spara, að hjer færi eins og reynslan sýnir alstaðar annarstaðar, og helst í þeim löndum, er viðskiftalífið er tryggara og fullkomnara í, eins og t. d. í Þýskalandi, að mótuðum peningum fækkar í stórum stíl í umferð, og það svo, að heita má að þeir sjeu sumstaðar að hverfa, nema allra smærstu silfur- og koparpeningar. En manna á milli ganga nær eingöngu bankaseðlar og aðrir viðskiftamiðlar, svo sem tjekkar og gíroávísanir. Það mundi ávalt reynast örðugt, án þess að hefta heilbrigt viðskiftalíf, að spyrna á móti þessari útrýmingu á peningum í umferð. Gangurinn er alstaðar sá, að seðlar útrýma gulli, og tjekkar og yfirfærslur aftur seðlum. Hitt er satt, að það er nauðsynlegt, að seðlarnir sjeu forsvaranlega málmtrygðir í bönkum og á annan hátt og jafnframt að bankarnir hafi annars sjóð í hlutfalli við skuldbindingar sínar. Þótt menn vildu, eins og meiri hlutinn kemst að orði, gefa myntuðum peningum rúm umferð, þá mundi það rúm verða fremur þunnskipað sem stendur. Gull er lítið til hjer, nema gullforði Íslandsbanka, sem er í höndum landstjórninni. Annars er lítið um mótaða peninga hjer, og að flytja þá að nú, er miklum erfiðleikum bundið, meðan á ófriðnum stendur, vegna útflutningsbanns í ýmsum löndum o. fl.
Meiri hlutinn talar um ímyndaða viðskiftaþörf hjá minni hlutanum. Einhverja ímyndan eða áætlun verða bæði meiri hluti og minni hluti að gjöra sjer. Auðvitað er viðskiftaþörf hvers lands ekki þannig ákveðin tala, að telja megi í brotum. En minni hluti byggir hjer á reynslunni, og það mjög varlega, gjörir ekki ráð fyrir því, að fjeð sje notað til fjárbralls, sem er talsvert frítt útlagt með »speculation«. Jeg veit ekki hvað meiri hlutinn meinar með »speculation«. Það má segja um svo margt, t. d. um svo að segja alla sjávarútgjörð og verslun, að jeg ekki tali um iðnað í stærri stíl. Jeg veit ekki hvernig aukin seðlaútgáfa á að geta aukið beinlínis aðflutning á vörum, nema þá á gulli, til að tryggja seðlana. Dálítið gæti hún aukið hann óbeint, nefnil. vegna verðhækkunar á hinni innlendu vöru og verðlækkunar á hinni útlendu. En hitt er satt, að nægur innlendur gjaldmiðill miðar til þess að hækka, eða halda í góðu, eðlilegu verði þeim vörum, er landið framleiðir. Skortur á gjaldmiðli miðar aftur til lækkunar á innlendu vörunni. Jeg hefi ekki orðið þess var, að verð á erlendum vörum hafi verið hjer yfirleitt, hvorki í ár, nje undanfarið, óeðlilega hátt. Þær eru að vísu nú í mjög háu verði, en jeg held, að varla verði sagt, að þær sjeu það óeðlilega eftir atvikum. Og jeg verð að efast mjög um það, að það sje rjett pólitík, að reyna að þrýsta niður verðinu á þeim, með því að sporna við því, að hjer sje til nægur gjaldmiðill í landinu. Það er fjarri því, sem meiri hlutinn segir, að seðlar rými gulli úr landinu. Þeir rýma því úr umferð, en halda því í landinu, í bönkum, landssjóði o. s. frv., þar sem svo er ástatt, að krafist er gulltryggar fyrir seðlum.
Meiri hlutinn talar um »lögþvingað lánstraust hjá þjóðinni, sem bankinn hefir notið hjá almenningi, og nemur nú 2½ milj. króna«, tryggingarlítið. Þetta er villandi. Þegar Alþingi veitti heimildina til stofnunar Íslandsbanka, með þeim hlunnindum — seðlaútgáfurjettinum með ákveðnum kjörum — og til þess var háttv. framsögum meira hl. (B. K.) einn helstur hvatamaður, þá var það vitanlega ekki gjört vegna þeirra manna, er báðu um leyfið til að stofna bankann, heldur var það af því, að stofnun bankans var álitin nauðsynleg fyrir þjóðina, nauðsynleg vegna almennings. Og það er ósannur og ómaklegur áburður á Alþingi það, er veitti seðlaútgáfurjettinn í heild sinni, og á hv. framsögum. meiri hl. (B. K.), að þessi rjettur væri veittur tryggingarlaust eða lítið. Tryggingin var ákveðin lík því, sem við gengst á meginlandi álfunnar, sjerstaklega eftir þýskri fyrirmynd, sjerstök gulltrygging, og auk þess eru allar eignir bankans til tryggingar. Þá kýs Alþingi 3 menn í bankaráðið af 7, stjórnin velur annan endurskoðanda, og bankaráðið hefir aðgang að því að rannsaka allan hag bankans á hverjum tíma sem er. Hinn sama rjett hefir landsstjórnin út af fyrir sig, sbr. statútur bankana 25. nóv. 1903 § 20. og 22. Ef þetta eftirlit er ekki eins og það á að vera, þá er þar um mest að kenna landsstjórninni og bankaráðinu, en ekki lögunum eða bankanum. Ef annars þætti einhverju hjer ábótavant, þá er auðvelt fyrir landsstjórnina að laga þetta.
Jeg mótmæli því afdráttarlaust, að Alþingi hafi vanrækt skyldu sína, að því er tryggingarráðstafanir að þessu leyti snertir. Og hjer eru þó í þessu frumv. heimtaðar enn meiri tryggingar, og það þótt um sje að ræða mjög takmarkaða aukningu, og að eins til bráðabirgða. Nú er krafist 50% gulltryggingar; áður 3/8 af seðlafúlgunni.
Jeg skal enn benda á það, að lögin um stofnun Íslandsbanka heimila landsstjórninni sjálfdæmi um það, hvernig eftirlitinu skuli varið. Það nær því ekki nokkurri átt, er sagt er í nefndarálitinu, að seðlaútgáfurjetturinn sje veittur bankanum að eins upp á hans »ærlega andlit«.
Háttv. meiri hluti reynir í stuttu máli að kenna háttv. Alþingi, hvað í seðlaútgáfurjetti felist, og hvernig best gæti orðið girt fyrir það, að þjóðin geti beðið neitt tjón af notkun bankaseðla. Þess er jafnframt getið, að flestar þjóðir hafi fyr eða síðar strandað á því skeri, að gefa út ofmikið af seðlum.
Hjer við er fyrst að athuga, að ef átt er við óinnleysanlega seðla, þá er það rjett, að þeir hafa reynst þjóðum og bönkum hættulegir, en ef átt er við gullinnleysanlega seðla, svo sem eru seðlar Íslandabanka, þá minnist jeg þess ekki, að nein þjóð hafi beðið stórtjón af notkun þeirra. En hitt, sem háttv. meiri hluti vill skýra fyrir Alþingi, gjörir hann vitanlega alls ekki; það verður heldur ekki gjört í stuttu máli. Auk þess deilt um það, hvernig best verði fyrir komið þessum tryggingarráðstöfunum. Þannig eru reglurnar fyrir Englandsbanka bygðar á alt öðrum grundvelli en hinar þýsku. En eins og áður er tekið fram, þá er Íslandsbanki sniðinn eftir þýsku reglunni, sem yfirleitt aðrar þjóðir eru farnar að taka sjer til fyrirmyndar, t. d. Bandaríkin og Japan. Enn fremur að mestu Norðurlönd. Alment er óhætt að segja það, að þýska reglan hafi reynst vel, og hefir engum orðið hált á, sem henni hafa fylgt.
Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því, hve mikið hvert land þarf af seðlum í umferð, og misjafnlega mikið er í umferð af mótuðum peningum, gulli. Á Englandi t. a. m. er talsvert mikið af gulli í umferð, sem stafar af því, að þar eru ekki gefnir út smærri seðlar en £ 5.00, gull (t. d. 1/2 £) er þar notað sem smápeningur. Skotar aftur á móti gefa út 1 £ Seðla, og þar er gull miklu minna í umferð.
Erlendis eru mjög notaðir tjekkar til greiðslu manna á milli, og verður þá eins konar gjaldmiðill, sömuleiðis gíróávísanir. En til þess, að þetta geti komið í stað reglulegs gjaldmiðils, þarf greið innanlandsviðskifti, enda langan lærdóms- og reynslutíma.
Hjer á landi er lítið í umferð af gulli eða mótuðum peningum, eins og eðlilegt er, því að til skamms tíma voru viðskiftin í miklum mæli að eins vöruskifti, auðvitað til hins mesta ógagns fyrir landamenn. Úr þessu hafa seðlar bankanna bætt, enda þarf hjer því tiltölulega mikið af seðlum. Auk þess eru tjekkar og slíkir viðskiftamiðlar eðlilega enn lítt notaðir hjer á landi, en viðskifti mikil á vissum árstímum, og því eðlilegt, að tiltölulega sje þörf mikillar seðlafúlgu um kauptíðir ársins, ekki síst meðan á ófriðnum stendur. En vegna hans hefir annarstaðar þótt ástæða til að rýmka seðlaútgáfu h. u. b. allra seðlabanka.
Því er haldið fram, sem mótbáru gegn því að auka seðlaútgáfurjett Íslandsbanka, að hann reki sparisjóðsstörf. Hann gjörir það að vísu ekki sjálfur, heldur að eins útibú hans. En hann tekur á móti innlánum gegn vöxtum. Það er rjett, að um það hefir verið deilt, hvort rjett væri, að seðlabankar tæki á móti slíkum innlögum. Hinir skotsku bankar byrjuðu þetta þegar 1792, og hafa haldið þeim sið. Þeim er þó talið stjórnað mjög vel. Eftir þeirri fyrirmynd hafa margir fræðimenn, og það mjög gætnir, haldið því fram, að löggjöfin geti látið seðlabankana sjálfráða um móttöku innlána, ef innlausn seðlanna sje sæmilega trygð. Yfirleitt taka seðlabankar móti rentubærum innlánum. Höfuðseðlabankarnir þó ekki nema sumir. Þýska bankanum er það heimilt. Ítalski bankinn gjörir það, og lögbannað er það yfirleitt ekki.
Hv. meiri hluti talar um það, að það þurfi að vera rannsakað af óvilhöllum mönnum, hvað sje hættulaust að gefa út af seðlum hjer á landi. Það virðist í áliti háttv. meiri hluta vera ruglað saman kenningunum um það, hve mikið þurfi eða megi hafa af seðlum alls, og hve mikið megi vera af ómálmtrygðum seðlum í hverju landi. Víðast hvar eru engin takmörk sett fyrir því, hve mikið af seðlum alls megi gefa út. Að þessu leyti er tafla meiri hlutans villandi. Hinu setur löggjöfin takmörk, hve mikið megi gefa út af ómálmtrygðum seðlum. Spurningin hjer verður að vera þessi, hve mikið er óhætt að gefa hjer út af ómálmtrygðum seðlum. Að þetta væri nokkur ástæða til að fara að skipa óvilhalla, sjerfróða menn, helst líklega erlenda, til að rannsaka þetta, get jeg ekki hugsað mjer. Mjer finst þing og stjórn ættu að geta nokkuð sjeð þetta, sjerstaklega stjórnin, sem hefir aðgang að því, að rannsaka allan hag bankans. Hjer verður að byggja á þeirri reynslu, sem þegar er fengin. Hún sýnir, að eftir því sem framtakssemi vex, öll framför í landinu og viðskiftin í landinu aukast hjer og komast í reglubundnara horf, eftir því veg eftirspurnin eftir seðlum. Sjálfsagt hefir það mikil áhrif í þessu efni, að umboðssalarnir eru nú innlendir, í stað þess að sitja úti í Kaupmannahöfn.
Jeg vil að eins drepa á fáar tölur. Í ágústmán. er seðlaumferð Íslandsbankaseðla 1908 1 milj., 1909 um 1 milj. 200 þús., 1910 sama, 1911 1 milj. 260 þús., 1912 um 1 milj. 300 þús., 1913 um 1 milj 600 þús., 1914 um 1 milj. 800 þús., 1915 um 2 milj. 700 þús. Í októbermánuði er umferðin hæst. Nú má ekki gefa út eða láta úti alla þá seðla, sem lögin leyfa. Bankinn verður bæði sjálfur og útibú hans að halda eftir í sjóði talsverðri fúlgu. Það er því auðsætt, að ekki veitir af 1 milj. kr. viðbót, og virðist sú viðbót sæmilega trygð með 50% málmforða, auk annarra eigna bankans. Mjer virðast færðar órækar sannanir fyrir því, að viðbótin megi ekki minni vera, til þess að nauðsynlegur gjaldmiðill sje fyrir hendi, ella verði viðskiftavandræði í landinu, arðsamir atvinnuvegir og framfarafyrirtæki teppist, örðugleikar á sölu innlendu vörunnar, landi og lýð til stórtjóns.
Jeg sagði áðan, að tafla meiri hlutans um seðlaútgáfurjett ýmissa banka væri villandi. Hún er bæði það, og sumstaðar beinlínis röng.
Um Englandsbanka er sagt, að ákveðinn seðlaútgáfurjettur sje 18 milj. og 450 þús. pund sterling. Þetta er ekki rjett. Seðlaútgáfurjetturinn er ótakmarkaður, en bankinn má ekki gefa meira út af ógulltrygðum seðlum en nefnda upphæð. Sem dæmi má taka, að 17. maí 1911 var seðlaútgáfan 54,894,240. Ríkisbankinn þýski hefir heimild til að gefa út ótakmarkaða upphæð í seðlum (»eftir því, sem viðskiftaþörf krefur«). Af hinni ómálmtrygðu seðlafúlgu eru hinar fyrstu 550 milj. við ársfjórðungslok, af 750 milj. marka, gjaldfrjálsar. Í nefndaráliti meiri hl. lítur svo út, sem seðlaútgáfarjetturinn nemi að eins 750 miljónum og skuli 1/3 þeirrar upphæðar gulltrygður. En það er ekki rjett. Í 5 ár (1909–1913) hafði bankinn árlega að meðaltali í umferð rúmar 1700 milj. marka í seðlum. Auk þess eru í Þýskalandi 4 aðrir seðlabankar, sem mega gefa út alt að 68,771,000 marka í ógulltrygðum og gjaldfríum seðlum.
Þá hafa þýsku ríkin gefið út 240 miljónir í ríkissjóðsseðlum, sem eru gjaldmiðill á borð við landssjóðsseðlana okkar.
Í þýsku ríkjunum nema silfur- og koparpeningaralls= 1,627,072,500 mörkum. Vegna hins gífurlega verðfalls á málminum eru þessir peningar í rauninni ekki nema þriðjungsvirði. Bætist þannig við hinn ótrygða og gjaldfrjálsa gjaldmiðil Þýskalands um 1000 milj. marka.
Þetta verður samtals ótrygt og gjaldfrítt:
Ríkisbankaseðlar mörk 750,000,000
Aðrir seðlar — 68,771,000
Reichskassenscheine — 240,000,000
Slegin mynt umfram
málmvirði — 1000,000,000
Samtals mörk 2,058,771,000
Austurríski-ungverski bankinn hefir rjett til að gefa út ótakmarkaða upphæð seðla. Bankinn greiðir skatt af þeirri upphæð hinna ótrygðu seðla, sem fer fram úr 600 milj. austurrískra króna. Hinn 7. desember 1812 voru í umferð 2,568,858,000.
Ítalski bankinn hefir ótakmarkaðan seðlaútgáfurjett á sama hátt. Þó skulu seðlarnir að fullu trygðir, ef upphæðin fer fram úr 660 milj. líra, ella verður bankinn að svara háu afgjaldi. Auk þess hafa tveir bankar aðrir rjett til þess að gefa út alt að 248 milj. líra. Gullforðatryggingin er jafnan 40 %.
Um rússneska bankann er rjett frá skýrt, gulltrygging samt ekki nema að nokkru leyti.
Finnlandsbanki má gefa út ótakmarkaða upphæð seðla. Þó skal sá hluti seðlafúlgunnar, sem er umfram 80 milj. finnskra marka, vera trygður. Til seðlatryggingar má telja lán í útiöndum með ábyrgð ríkisins alt að 50 milj. marka. Hlutfallið milli seðlaútgáfu og seðlatryggingar er óákveðið. Seðlar í umferð voru í des. 1910 nál. 124 miljónir.
Ríkisbanki Svía má gefa út ótakmarkaða upphæð seðla. Þó skal alt, sem út er gefið af seðlum, umfram 100 milj. kr. og umfram þá upphæð, er samsvarar þeim hluta gullforðans, sem er fram yfir 40 milj. kr., vera að fullu trygt. 30. des. 1910 mátti þannig gefa út rúmar 140 milj. kr. í ótrygðum og afgjaldsfrjálsum seðlum.
Noregsbanki má gefa út 45 (ekki 35) milj. króna fram yfir gullforða. Jeg þekki ekki canadisk bankalög frá 1913. Bankafræðibækur frá 1914 geta ekki um þau, en þangað til þóttu ekki bankalög þeirra fyrirmynd. Bankalög Bandaríkjanna frá 23. des. 1913 eru eftir þýsku fyrirmyndinni, seðlafúlgan ótakmörkuð eftir viðskiftaþörfinni og gullforðinn ákveðinn 40%. En bankatrygging (bankemessis) er betri en gjörist um banka á meginlandi Norðurálfunnar, nfl. gulltrygging, auk 100% bankatryggingar (víxlar og aðrir »disconti«).
Þegar að því kemur, sem væntanlega verður á næsta þingi, að ákveða til nokkurrar frambúðar seðlaútgáturjett Íslandsbanka, þá má vel vera, að rjett sje að taka til fyrirmyndar bankalög Bandaríkjanna að þessu leyti. Þá getur vel komið til mála að ákveða það, að seðlarnir hafi forgangsrjett í málmtryggingunni. Jeg gjöri ekki ráð fyrir, að bankinn myndi hafa á móti því, að settar sjeu þær tryggingar, bæði í gullforða- og bankatryggingu, er nægar mættu þykja. Ekki svo að skilja, að tryggingin að öllu leyti, eins og nú stendur, sje ekki viðunandi. En það gæti verið gott fyrir bankann sjálfan, að þetta alt væri enn ríkara, því að bankinn hefir ráð á því.
Jeg vil svo enda mál mitt með því, að biðja þá háttv. deildarmenn, sem styðja vilja frjála og eðlileg viðskifti í landinu, að greiða atkvæði með minni hlutanum. Hinir greiða sennilega atkvæði með meiri hluta nefndarinnar.