19.08.1915
Neðri deild: 37. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 740 í B-deild Alþingistíðinda. (1509)
72. mál, kirkjugarður í Reykjavík
Ráðherra :
Það eru að eins nokkur orð, sem jeg vildi segja um brtt. á þgskj. 327.
2. brtt. er um það, að upphæðin verði takmörkuð við 10 þús. kr. Jeg skal ekki segja, nema sú upphæð kunni að nægja. En jeg vildi að eins benda á, að það getur verið: óheppilegt, að takmarka upphæðina á þenna hátt, því að hugsanlegt er, að hægt verði að komast að betri kaupum, ef stærra land er keypt.
Þá er 3. brtt. Jeg er ekki viss um, hvort rjett er að færa legkaupið þannig niður. Ef það er ekki fært niður, býst jeg við, að það nemi samtala 8–10 hundruð kr. á ári. Og mjer skilst, að það megi naumast minna vera, ef tilætlunin er sú, að láta landssjóð sleppa skaðlausan. Hvern einstakling munar ekki mikið, hvort hann geldur 50 aurum eða 1 krónu meira eða minna, en það dregur sig saman, og getur munað nokkru, þegar það kemur á eina hönd.