19.08.1915
Neðri deild: 37. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í B-deild Alþingistíðinda. (1512)

72. mál, kirkjugarður í Reykjavík

Pjetur Jónsson:

Út af ræðu hv. 2. þm. Rvk (J. M.) vildi jeg taka nokkuð fram til andmæla. (Jón Magnússon: Það er ekki hægt). Jú, jeg held það sje hægt. Jeg held, að það hafi ekki verið alveg nægilega athugað, sem hann sagði, að með legkaupinu væri Reykjavíkursöfnuður beittur misrjetti gagnvart söfnuðum landsins. Hann hefir ekki gætt þess, hvernig hagar til. Það er satt, að legkaup er úr lögum numið alstaðar, og jeg er á því, að það hafi ekki verið rjett gjört; teldi því rjett, að jafnframt því, sem það er leitt í lög hjer, væri það einnig lögleitt í öðrum söfnuðum landsins. En þessa skoðun hefi jeg ekki af því, að jeg telji Reykvíkinga beitta ranglæti, þó að þeir, einir sjer; gjaldi legkaup. Því er svo varið um flestar kirkjur landsins, að þær eru í höndum safnaðanna. Þeir borga kirkjunum nægilegt fje til viðhalds og einnig kirkjugörðunum. Það kemur niður á söfnuðunum að halda kirkjugörðunum við og leggja til grafreit, þó að þeir borgi ekki legkaup; ef lögmælt kirkjugjöld hrökkva ekki til, bætir söfnuðurinn við eða hækkar kirkjugjaldið. Hjer veit jeg aftur á móti ekki til, að söfnuðurinn leggi kirkjunni eða kirkjugarðinum, nokkuð annað en föstu kirkjugjöldin og girðing um grafreitinn.