30.07.1915
Neðri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (1539)

45. mál, ráðstafanir út af Norðurálfu-ófriðnum

Eggert Pálsson:

Við háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) eigum saman brtt. á þgskj. 106. Hvað hana áhrærir, þá sjá allir, að hún er lík að efni til brtt. minni hluta nefndarinnar á þgskj. 113. Mönnum, sem lesa brtt. okkar, getur ekki dulist, að stefna okkar og háttv. minni hluta nefndarinnar í þessu máli er harla svipuð og í rauninni sú sama og var ráðandi á þinginu í fyrra, sem sje sú, að vilja ekki banna útflutning á innlendri matvöru, nema til voða horfi fyrir landamenn með samgönguleysi við önnur lönd.

Þegar lögin um þetta efni voru sam. in á síðasta þingi, þá var stríðið ný skollið á og geigur mikill hafði gripið alla. Minsta kosti var það svo um mig, að hjá mjer var óttinn við stríðið, eða afleiðingar þess fyrir okkur, þá miklu ríkari en hann er nú. Nú hefir reynsla síðasta árs fært mjer heim sanninn um það, að ekki er ástæða til að óttast matvælaskort í landinu, og því finst mjer ekki vera nokkur skynsamleg ástæða til að setja nú strangari lagaákvæði en sett voru á þinginu í fyrra.

Meiri hluti nefndarinnar lítur sýnilega alt öðru vísi á þetta mál. Hann telur ástandið hættulegra nú en það var um þetta leyti í fyrra, og vill því nú gefa stjórninni heimild til að banna útflutning á ýmsu, svo sem kjöti, ull, hrossum og fiski, og það meira að segja skilyrðialaust. Hann vill leyfa stjórninni, »ef þörf gjörist«, að kaupa frá útlöndum ýms matvæli. En þetta »ef þörf gjörist« þykir honum ekki einu sinni ásteeða til að hafa með, þegar ræða er um haft á útflutningi, heldur vill hann heimila stjórninni, að banna útflutning á innlendri matvöru þótt þess gjörist engin þörf, Það er því öllum sýnilegt, að hjer er ekki deilt um einstök atriði, heldur veltur hjer beinlínis á stefnumun í málinu. Það er sýnilegt, að háttv. meiri hluti telur það ekki hættulegt, að takmarka eða hefta viðskiftalífið með því, að banna útflutning á framleiðslu landsins. En jeg lít alt öðrum augum á slíkt. Mjer finst það sje í eðli sínu það sama, sem að skera á einhverja lífæð mannlegs líkama.

Allir hlutir líkamans finna til og líða við það, þegar skorið er á æðina. Það er öldungis óhjákvæmilegt. Auðvitað finna þeir hlutar líkamana fyrst og mest til, sem næstir eru skurðinum, en að lokum hlýtur allur líkaminn að líða af áverkanum að meira eða minna leyti.

Ef til dæmis væri alt í einu bannaður útflutningur á fiski, ætli útgjörðarmennirnir ættu þá hægt með að standa í skilum við verkamenn sína og þá aðra, sem þeir skulda? Jeg held ekki. Það er ekki hægt fyrir þá, að koma öllum fiskinum út innan lands, og með hvaða móti ættu þeir þá að fá peninga til þess að gjalda verkafólki sínu kaup? Bannið kæmi því fyrst niður á útgjörðarmanninum, en síðan einnig á verkamanninum. Alveg sama máli er að gegna um landbóndann. Með hvaða gjaldmiðli á hann að borga kaupafólki sínu, ef hann getur ekki komið afurðum sínum í peninga. Og fyrir hvað á svo kaupafólkið að kaupa, þegar það kemur hingað í haust, og hefir enga peninga fengið fyrir vinnu sína? Og enn fremur, hvernig geta kaupmenn fengið peninga, til þess að kaupa fyrir erlenda vöru, ef salan á hinni innlendu er hept? Til þess að þeir geti fengið erlenda vöru, verða þeir að koma innlendu vörunni á markaðinn utanlands, og fá fyrir hana peninga þar.

Háttv. framsögumaður meiri hlutans (S. B.) sagði áðan, að ekki yrði gripið til heimildarlaganna fyrr en þörf krefði. En úr því að svo er, hví má þá ekki þetta ákvæði standa skýlaust í frumv., eins og við viljum vera láta?

Jeg skil ekki hvað háttv. meiri hl. meinar, ef þetta er rjett, sem háttv. framsögumaður sagði. En hins vegar skil jeg hann vel, ef það er rjett, sem mjer finst gægjast út á milli orða hans, að meiningin væri sú, að láta lögin koma til framkvæmda strax nú í sláturtíðinni í haust.

Háttv. framsögumaður meiri hlutans (S. B.) gjörir ráð fyrir því, að í haust verði verðið á íslenskum afurðum afskaplega hátt. Jeg sje ekki neina ástæðu til þessa álits hans. Jeg býst við því, að mörgum sje það kunnugt, að Sláturfjelagi Suðurlands hefir borist tilboð um 50 aura í kjötpundið af dilkakjöti, með því skilyrði, að það sje til um eða fyrir miðjan ágústmánuð. En ef bændur hjer sunnanlands vilja vinna til, að taka dýra menn frá slætti, til þess að smala fje sínu og reka það hingað, þá búast þeir ekki við háu verði i. haust. Það sjá og skilja allir. Því yrði verðið svipað eða ekki mikið lægra í haust, þá er auðsær skaðinn á því, að skilja dilka snemma frá. En setjum nú samt svo, að innlendar afurðir verði í afarháu verði. Jeg sje samt enga ástæðu til að óttast matvælaskort í landinu. Ef mörgu fje verður slátrað hjer, þá fá bæjarmenn því meira slátur til neytslu. Nema ef þeir láta enn til þess koma, að fleygja þurfi slátri fyrir þúsundir króna í sjóinn, eins og gjört hefir verið undanfarið, af því að enginn hefir viljað hagnýta sjer það.

Hvað það snertir, að kjöt hafi verið í hærra verði hjer en í Kaupmannahöfn að undanförnu, skal jeg taka það fram, að mjer er vel kunnugt um, að þetta er ósatt. Jeg hefi verið í stjórn Sláturfjelags Suðurlands um nokkurra ára skeið, og veit því vel, að verðið á kjöti hjer í bænum hefir ætíð verið miðað við erlenda markaðsverðið yfirleitt. Svo að ef einstakir menn hjer í bænum hefðu viljað fá tunnu af kjöti, þá gátu þeir ætíð fengið hana fyrir hið sama og fæst fyrir hana í útlöndum, að frádregnum flutningakostnaði. En hafi þeir viljað fá kjötið brytjað sundur og í smásölu selt, og heim til sín flutt, þá hafa þeir vitanlega orðið að borga þá sundurdeilingu og kostnað aukreitis. Það liggur í hlutarins eðli. Og með tilliti til þess getur útsöluverð á hverju einstöku kjötpundi hjer í Reykjavík hafa orðið hærra en á kjötpundinu í tunnum erlendis.

Það, sem mjer finst verða að leggja áherslu á í öllu þessu máli, er það, að fá sem fyrst flutt hingað nægan forða af nauðsynjavörum frá útlöndum, ef svo kynni að fara, að skipaferðir teptust. Það er aðalatriðið.

Jeg sje ekki, að það sje hundrað í hættunni, þótt menn yrðu að neita sjer um að borða nema lítið eitt af kjöti í vetur. Ef nægilegt er fyrir hendi af annari matvöru, þá hygg jeg að af megi komast, og engin neyð eða hungur þurfi að vera fyrir dyrum.

Það er gott að vera forsjáll og byrgja brunninn áður en barnið er dottið í hann, eins og háttv. framsögum. meiri hlutans (S. B.) sagði; því skal jeg ekki neita. En forsjálnin verður þó að vera eitthvað annað en fálm út í loftið, eins og mjer finst hjer koma fram. Það, sem mest veltur á í þessu máli, og það, sem okkur greinir mest á um í insta eðli sínu, er það, hvort heldur það er happ eða óhapp fyrir þjóðina í heild, að innlenda varan hækki í verði. Jeg fyrir mitt leyti lít svo á, að hækkunin leiði yfirleitt til framfara og lyftingar fyrir þjóðfjelagið. En það lítur svo út, sem aðrir álíti það happadrýgst fyrir landið, að framleiðsla þess sjálfs standi sem lægst, og allar vörur, þótt innlendar sjeu, sjeu fáanlegar með sem bestu verði. En slíkt hlýtur frá mínu sjónarmiði að draga úr allri framleiðslu.

Annars skal jeg nú ekki fjölyrða um þetta mál að sinni, meira en orðið er. Að eins vil jeg að lokum taka það fram, að af því að brtt. okkar háttv. þingm. N.-Þing. (P. J.) á þgskj. 106 er svo lík að efni til brtt. háttv. minni hluta, og það getur ef til vill valdið ruglingi við atkvæðsgreiðsluna, að hafa þær báðar fyrir sjer, þá hefir mjer og háttvirtum meðflutningsmanni mínum þótt rjett, að taka tillöguna aftur, og láta brtt. minni hlutans einar gilda.