03.08.1915
Neðri deild: 23. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í B-deild Alþingistíðinda. (1553)
45. mál, ráðstafanir út af Norðurálfu-ófriðnum
Guðmundur Hannesson:
Jeg vil taka það skýrt fram, út af ummælum, er komu fram í ræðu háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.), að hvort heldur sem 3. gr. frumvarpsins á þgskj. 88 verður samþykt óbreytt eða ekki, þá á það alls ekkert skylt við vantraust á stjórninni. Henni verða hvort sem er fengin mikil völd í hendur. Hún má kaupa vöru fyrir landssjóðsfje, taka þær eignarnámi, ef henni líst, leggja lag á þær, verja landssjóðsfje til þessa, og þar að auki með vissum takmörkum banna útflutning á ýmsum vörum. Það sjest því, að hún hefir rúmt vald yfir öllu þessu, og það á því ekkert skylt við vantraust hvor leiðin sem farin er.
Afstaða manna til þessa frumv. mun fara mikið eftir því, hvað þeim finst haganlegast. Mjer fyrir mitt leyti stendur stuggur af, að haft sje lagt á útflutninginn. Ef að ráðstafanir þingsins eiga að koma að nokkru verulegu haldi, þá þurfa þær ekki einungis að tryggja það, að enginn skortur verður á mat. vælum í landinu, heldur og einnig, að svo miklu leyti sem hægt er, að tryggja það, að verðið fari ekki svo fram úr hófi, að fátæklingum verði algjörlega ofvaxið að nota sjer vörurnar, vegna dýrleika. Geti þeir ekki keypt, þá má alveg, eins flytja vöruna út.
Hvað snertir innlend matvæli, svo sem kjöt og fisk, þá nægir eignanámsheimildin fullkomlega, til þess að birgja landið af vörum með fullu verði, og þarf það ekki að trufla verslunina, svo að teljandi sje. Ef svo síðan skal selja vöruna við hæfilegu verði, svo að fátæklingunum verði ekki það ókleift, þá verður stjórnin að setja verðið lægra en inn var keypt, og landsjóður þá að borga mismuninn. En ekki finst mjer búmannlegt, að láta sitja við þetta eitt, því ef þessi leið er farin, þá má búast við því, að landssjóður bíði tilfinnanlegan halla af. Fyrir þessu hefði átt að sjá með lágu útflutningsgjaldi af kjöti og fiski, sem gæti bætt hallann að miklu leyti. Jeg hafði nú búist við, að dýrtíðarnefndin kæmi með eitthvert slíkt frumvarp, en svo varð þó ekki. Hefði t. d. verið lagður svo sem 2 aura skattur á hvert kjötpund og eitthvað tilsvarandi á fisk, sem seldist fyrir hærra verð en vjer höfum átt að venjast, þá hefði stjórnin fengið nægt fje til þess að ráða úr vandræðum. Jeg hygg bændur ekki algjörlega ófúsa á, að greiða eitthvert lágt gjald, en auðvitað er, að þeir vilja að það komi rjettilega niður. Mjer er með öllu óskiljanlegt, að aðflutningar teppist. Öll nágrannalönd vor hljóta að flytja mikið inn af matvælum, og svo framarlega sem vjer höfum samband við eitthvert þeirra, myndum vjer geta keypt nauðsynjavörur handa oss. Að Ameríka hætti að flytja út kornvöru, nær engri átt, jafnvel þó hún lenti í ófriði.
Meðan Danmörk sleppur hjá ófriðinum, getum vjer væntanlega fengið nauðsynjavöru þaðan. Færi nú svo, að Danmörk kæmist í ófriðinn, þá er tæplega nokkur vafi á því, að Englendingar krefjast yfirráða yfir landinu, uns stríðið er útkljáð, og jafn vel þó að herskip það, er nú siglir hjer inn höfnina, væri komið til þess að draga upp enska fánana hjer á landi, þá er jeg ekki vitund smeikur um, að Englendingar myndu láta okkur sitja í sveltu. Jeg tel þetta þess vegna óþarfa grýlu. Og jeg tel varhugavert, að stjórninni sje gefin heimild, til þess að kaupa nú þegar miklar birgðir af korni, meðal annars af því, að ef Englendingar komast í gegn um Dardanellasund, þá mun kornverð falla á heimsmarkaðinum, vegna hinna miklu birgða, er Rússar sitja með og geta ekki komið út meðan að sundið er lokað. Það gæti því orðið talsvert fjármunalegt tjón, að kaupa nú miklar birgðir. Jeg skal ekki eyða fleiri orðum að þessu, en viðvíkjandi því, er háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.) sagði, að kaupmönnum myndi óþægilegra, ef tekið, væri eignarnámi hjá þeim, en ef að bannið kæmist á, þá fæ jeg ekki annað sjeð, en að stjórninni sje í lófa lagið að semja þá um það við kaupmenn, að ákveðinn hluti vörunnar sje ekki fluttur út og seldur hjer. Kæmi þá alt í sama stað niður.