03.08.1915
Neðri deild: 23. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)

45. mál, ráðstafanir út af Norðurálfu-ófriðnum

Jón Magnússon :

Jeg þarf engu að bæta við ræðu háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.). Rök þau, er hann færði fyrir sínu máli, voru svo skýr. Jeg vil að eins minna menn á, að þetta, sem kemur nú frá meiri hluta nefndarinnar, er ekkert annað en það, sem allar Norðurlandaþjóðirnar hafa gjört, hver hjá sjer. Mjer datt satt að segja ekki í hug, að meiri hlutinn myndi fá ákúrur fyrir þetta. Norðmenn, Danir og Svíar hafa gjört sams konar ráðstafanir, en að öðru leyti falið stjórninni framkvæmdirnar. Að mönnum hjer sýnist annað, get jeg ekki skilið, ef þeir eru sömu skoðunar sem háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.), að hjer sje engin hætta á ferðum. Auðvitað, ef svo er, að engin hætta er á ferðum, engin þröng, þá er hreinasti óþarfi að vera að gjöra nokkrar ráðstafanir yfirleitt. Jeg hygg samt, að menn sjeu yfirleitt annarar skoðunar.

Aðrar þjóðir hafa farið þessa leið, af því, að alstaðar hefir sú skoðun verið ríkjandi, að landsmenn ættu fyrst og fremst sjálfir að njóta góðs af afurðum landsins og framleiðslu sinni. Það er rjett, að sams konar ráðstafanir erlendis hafa haft það í för með sjer, að verð á innlendu matvörunni lækkaði dálítið, frá því sem hún hefði annars selst fyrir, en annarsstaðar hafa menn sætt sig við það.

Háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.) kvað stjórnina eiga að bera ábyrgð á því, að alt það, sem ekki flyttist út af bannvörunni, verði selt. Þetta er hvergi annarsstaðar gjört, það jeg veit til. Það er og alveg satt, að það er mikið hyggilegt, ef til vill, að kaupa kornvöru annarsstaðar að. En örðugleikar eru nokkrir á því, að geyma miklar birgðir af kornvöru. Jeg veit, að hjer í Reykjavík eru að minsta kosti miklir örðugleikar á því, ekki síst eftir brunann mikla, og jeg get ímyndað mjer, að út um land sje lítið um geymsluhús til þess, nema hjá kaupmönnum. (Jóhann Eyjólfsson: En hvar á þá að fá húsnæði fyrir kjöt og fisk?). Væri bann lagt gegn útflutningi einhvers lítils hluta af kjöti og fiski, mundi þessi hluti verða keyptur jafnóðum af einstökum mönnum, og ekki þurfa að útvega neina sjerstaka geymslu. Það mun nú vera svo komið, að fyrirsjáanlegt er, að ráðstafanir meiri hlutans ná ekki fram að ganga, og það er náttúrlega ekki til neins að tala um það; það verður svo að vera En jeg er þess alveg fullviss, að eignarnámsheimildin myndi aldrei verða að notum, nema að því eina leyti, að birgja upp fiskiskip okkar í vetur, áður en þau leggja út til fiskjar. Jeg hygg annars tæplega, að til þess mundi yfirleitt ekki verða gripið, að taka eignarnámi þessar nauðsynjavörur. Jeg verð annars að segja það, að mjer þykir afar leitt, að menn skuli vera að reyna í máli þessu, að vekja deilur milli sjávarútvegsmanna og bænda, eða reyna að fá menn til að trúa því, að í tillögum meiri hlutans felist einhver árás á landbúnaðinn. Slíkt hafði nefndinni, eða meiri hluta hennar, aldrei til hugar komið. Hið eina, sem fyrir okkur vakti, var þetta, að reyna að gjöra einhverjar ráðstafanir um bjargráð, og þótti okkur þá ekki óskynsamlegt; að fara eins að og aðrar þjóðir hafa gjört: Hvernig sem menn annars líta á þetta mál, þá tel jeg það illa farið, að svo mikið kapp skuli hafa komist í þetta mál, að jeg ekki segi ofsi og illindi. Það átti að ræða það með hinni mestu alvöru og stillingu.

Jeg hygg það óráðlegt, að þingið fari sjálft að fást við nánari dýrtíðarráðstafanir. Framkvæmdirnar í þessu efni verður að fela stjórninni, eins og alstaðar annarstaðar hefir gjört verið. En ef þingið sjálft ætlar að fara að gjöra þetta, hvað halda þá háttv. þm. að muni þurfa marga mánuði til þess, þegar að við höfum eytt tveim dögum nú þegar, í þessa þrætur.