26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í B-deild Alþingistíðinda. (1587)
12. mál, landhelgissjóður Íslands
Ráðherra:
Þar sem háttv. þm. N.-Ísf: (Sk. Th.) sagði, að nefndin hefði gengið í gildru, er jeg hefði lagt fyrir hana, í þessu máli, þá verð jeg að mótmæla því. (Skúli Thoroddsen: Hvers vegna brosir hæstv. ráðherra?). Af því að þm. N.-Ísf. er í þennan svipinn ofurlítið broslegur. Háttv. þm. N.-Ísf. er það vel kunnugt, að í nefndinni eiga sæti þeir menn, sem eru svo sjálfstæðir, að hvorki jeg nje aðrir myndi hafa áhrif á skoðanir þeirra í þessu efni. En vel má vera, að margir líti sömu augum á það, að krafan um að fá fallbyssubátana, fari ekki í sömu átt og sjálfstæðisstefna sessunautar háttv. þm. N.-Ísf. (B. J. frá Vogi).
Mjer er sama persónulega, þótt tillagan sje í samþykt. Það gjörir mjer ekkert til eða ráðherra þeim, sem á eftir mjer kæmi, því að sjálfsögðu bærum við enga ábyrgð á því, hvort málið kæmist í höfn á þann hátt, sem háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) vill, eða ekki:
Viðvíkjandi brtt. á þgskj. 98, þá væri það skemtilegt, að Landhelgissjóðurinn yxi sem mest. En þar sem sjóðurinn hlýtur nú sem stendur að vaxa mest fyrir bein framlög úr landssjóði, er það mjög hæpið, að maður megi missa svo mikið fje úr honum, af því að önnur lögmælt gjöld úr honum vaxa líka. Verður því að klifa þrítugan hamarinn til þess að fullnægja þeim. Og fyrir utan þessi lögmæltu gjöld, hefir landssjóður ýmsar þungar byrðar að bera, 1/3 miljón króna árlega í afborgun og rentur af lánum og 100,000 kr. árlega til Landsbankans, og svo má lengi telja. Nú kann að fara svo, að landssjóður fái ekki nógu mikið fje til þess að standast þetta. Að vísu má þá segja sem svo, að þá megi grípa til viðlagasjóðs, en þá er því til að svara, að hann er allur í lánum, er eigi verða innheimt á skömmum tíma, og nú sem stendur er engin verðbrjef hægt að selja, af þeirri einföldu ástæðu, að markað vantar erlendis fyrir þau.