26.07.1915
Neðri deild: 16. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (1588)

12. mál, landhelgissjóður Íslands

Framsögum. (Matthías Ólafsson):

Jeg hefi ekki kært mig um að tala um tillöguna, en setti málið í samband við hana, af því að mjer fanst það vera rjett. Jeg veit hver verða forlög hennar, og betra hefði verið að taka tillöguna aftur, er hún kom til umræðu. Jeg held fast við þetta, að fjárhagsútlitið sje nú svo ískyggilegt, að eigi beri að verja stórfje til neins þess, er eigi gefur skjótan og áreiðanlegan arð, en undir slíkt heyrir þetta ekki. Enn fremur held jeg því fram, að vjer eigum að stefna að því, að taka að okkur landhelgisvörnina, og verja í því skyni eins miklu og vjer sjáum okkur fært, en ekki meira. Hvað það snertir, að kvartanir hafi komið víðs vegar að, um það, að strandgæslan sje ekki í sem bestu lagi, þá má vel vera að svo sje. Jeg held því ekki fram, að þetta eina skip, sem nú hefir strandgæsluna á hendi, geti nægt. En þar sem botnvörpungum hefir fækkað gríðarlega, og því nú lítið af þeim hjer við land, og mun svo verða á næstu árum, þá sje jeg ekki ástæðu til þess, að strandgæsluskipunum sje fjölgað. Og lengi mætti bæta flotann, ef hvergi ættu kvartanir að heyrast.

Hvað bölbænirnar snertir, er háttv. þm. N.-Íaf. (Sk. Th.) var að spá um, þá hugga jeg mig við það, að hafa í þessu máli fylgt samvisku minni. Jeg hefi ekki farið til hæstv. ráðherra til þess að vita skoðun hans, jeg vissi ekki fyrr en nú,. hver hún var. Mjer þykir að vísu gott, að hann lítur á þetta svipuðum augum og jeg, en get þó farið mínu fram. En það þykir mjer hart, að hv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), skuli væna mann þess, að maður fylgi ekki eigin sannfæringu heldur fari eftir skoðunum annara. Jeg var eitt sinn þar sem háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) var yfirvald, og má honum vera það kunnugt, að jeg elti ekki á honum rófuna.

Jeg held því fast við skoðun nefndarinnar. Svo munu og aðrir nefndarmenn gjöra, og jeg vonast til, að deildin fallist á hana.