14.08.1915
Neðri deild: 33. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 858 í B-deild Alþingistíðinda. (1595)

12. mál, landhelgissjóður Íslands

Björn Kristjánsson:

Jeg vil að eins geta þess, að þetta frv. var flutt í Ed. af háttv. 2. þm. G. K. (K. D.) samkvæmt umboði frá hreppsnefndinni í Keflavíkurhreppi sökum þess, hve ilt er um vatn í Keflavík. Jeg vona að háttv. deild hafi ekkert á móti því að gefa þessa heimild, er frumvarpið fer fram á, svo að ekki einungis Keflavíkingar, heldur og allir þorpsbúar í landinu, geti grafið brunna og veitt vatni á kostnað bæjarbúa, að svo miklu leyti sem þeir æskja sjálfir.