09.08.1915
Neðri deild: 28. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 868 í B-deild Alþingistíðinda. (1622)

70. mál, Hafnarfjarðarvegur

Guðm. Hannesson:

Jeg skal vera stuttorður; en viðhald vega er svo þýðingarmikið mál, að ekki dugar að ganga alveg þegjandi fram hjá viðhaldi þessa vegar. Hvað það snertir, að vegurinn geti ekki talist flutningabraut, þá er sú ástæða lítils virði. Vegurinn er notaður til hvers konar vöruflutninga.

En að ókleift sje að skipa fyrir um þann vegarkafla, sem liggur í Kjósarsýslu, get jeg ekki fallist á.

Þó er það mikil bót í máli, ef lands sjóður á að eins um fáein ár að annast viðhald vegarins, þótt lítil sanngirni sje í því, að skella viðhaldinu á nokkurn hátt á hann. Jeg óttast að eins, að langur tími líði, áður en það kæmist á annan rekspöl. Að vegurinn sje nú illur yfirferðar, eða jafnvel ófær um suma tíma árs, er einungis þeim til skammar, er nú eiga að annast viðhald hans.