13.08.1915
Neðri deild: 32. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í B-deild Alþingistíðinda. (1627)

103. mál, vatnssala í kaupstöðum

Forseti :

Þetta frumv. er ofseint fram komið; það er sem sje ekki afhent fyrr en 10. ágúst, en það er hjer um bil viku seinna en bera mátti fram frumvörp í síðasta lagi, þ. e. 4 vikum eftir þingbyrjun. Þarf því samþykki háttv. deildar, til þess að það verði tekið fyrir hjer, en áður en þess samþykkis er leitað, gefst háttv. flutningsmanni, þingm. Ak. (M. K.), leyfi til að segja nokkur orð, til þess að lýsa þýðingu frumvarpsins.