13.08.1915
Neðri deild: 32. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í B-deild Alþingistíðinda. (1628)

103. mál, vatnssala í kaupstöðum

Flutnm. (Magnús Kristjánsson):

Jeg hefi neyðst til þess að flytja þetta frumv. hjer, þótt seint sje orðið, vegna þess, að mjer hefir verið eimað það fyrir skemstu heiman af Akureyri, sem ekki hefir við borið áður, en það er, að einstakir menn þar sjeu byrjaðir að keppa við bæjarfjelagið um sölu á vatni til skipa, sem á höfnina koma. Þetta er tilfinnanlegt, því að nú er bærinn nýbúinn að koma á vatnsveitu, sem kostaði 70 þúsund krónur, og þessi vatnssala til skipanna var einmitt þýðingarmikill tekjuliður, sem ætlast var til, að bærinn hefði, til að standast þann kostnað. Það virðist því óhjákvæmilegt, að gjöra ráðstafanir til þess að annað eins og þetta geti ekki átt sjer sjer stað framvegis, og það því fremur, sem það eru einkum útlendingar, sem hafa tekið upp á því, að baka bænum tjón á þenna hátt.

Jeg gjöri nú ráð fyrir því, að einhverjir kunni að álíta, að til sjeu einhver lög, sem hægt sje að nota, til þess að koma í veg fyrir þetta, en það er nú samt svo, að yfirvaldið þarna á staðnum, treystir sjer ekki til að hafa hemil á því með þeim lögum og reglugjörðum, sem til eru. Og jeg vona, að háttv. deild taki þessu máli vel, þar sem menn vissu ekki áður, að þörf væri á slíkum ákvæðum. Og þótt undanþága verði veitt frá þingsköpum, til þess að koma því fram, þá vona jeg, að það verði ekki skoðað sem hættulegt fordæmi, heldur einmitt sem gott fordæmi um það, að slakað sje á reglunum, þegar það er beinlínis nauðsynlegt.

Samþykt var í e. hlj. að leyfa að taka málið fyrir.