27.08.1915
Neðri deild: 44. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1645)

71. mál, veiting prestakalla

Framsögum. Stefán Stefánsson) :

Þetta mál var flutt hjer á þinginu af háttv. 2. þm. Húnv. (G. Ó.) í Ed., og kemur því þaðan. Vjer nefndarmenn álítum þá breytingu hagkvæma, sem frv. fer fram á, sem sje þá, að prestakosning fari fram í hverri kirkjusókn prestakallsins fyrir sig, en ekki að eins á einum stað, eins og núgildandi lög mæla fyrir. Er þeim sóknum, er prestakosningin fer þá ekki fram í; gjört erfiðara fyrir að nota sinn kosningarrjett, enda mun það ekki svo sjaldan hafa fyrir komið, að flest hin greiddu atkvæði hafa verið úr þeirri kirkjusókninni, er kosningin fór fram f. Það yrði því til verulegra bóta, ef þessu fyrirkomulagi yrði breytt og hluttaka manna fengist þar af leiðandi miklu almennari en verið hefir. Þar sem líka áhugi manna fyrir því að nota kosningarrjett sinn, hlýtur að vera að mestu leyti hinn sami, hvar sem er í prestakallinu, þá er það líka ofur eðlileg breyting, að hverjum kjósanda leyfist að neyta rjettar síns í sinni kirkju.

Málið er mjög rækilega undirbúið, þar sem leitað hefir verið umsagnar nær 200 kirkjusókna og flest allar þeirra hafa tjáð sig með þeim þeim breytingum, sem frumvarpið fer fram á. Annars er þessi breyting í fullu samræmi við þingkosningarnar, þar sem þær kosningar fara nú orðið fram í hverjum hreppi, og koma því á líkan hátt í veg fyrir stífsinnaðar »agitationir« kjördaginn.

Önnur aðalbreyting frumvarpsins er sú, að í yfirkjörstjórn eigi sæti biskup og tveir menn, sem skipaðir eru af stjórnarráðinu, og sóknarnefndir stýri kosningunum hver í sinni sókn. Verður því þessi breyting til þess að veiting brauðanna fer langt um greiðlegar fram en verið hefir.

Nefndin vill því eindregið mæla með því, að frumvarpið verði samþykt.