16.08.1915
Neðri deild: 34. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)
104. mál, útflutningsgjald
Frsm.(Pjetur Jónsson):
Við fjárl. nefndarmenn skiftum svo verkum með okkur, að ekki væri hvert atriði athugað af allri fjárlaganefndinni í heild sinni. Þetta mál, sem hjer liggur nú fyrir, kom þá í hlut hv. formanns nefnd- arinnar (S. B.). Hann er því miður ekki viðstaddur hjer, og getur því ekki svarað háttv. þm. Ak. (M. K.). En jeg hefi ekki kynt mjer málið sem skyldi.
Háttv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að hjer væru höfð endaskifti á því, sem þingið 1907 gjörði í þessu máli. Háttv. þm. veit það vel, að þessi 10. hluti útflutningsgjaldsins, sem rennur til innlendra útgjörðarmanna, var ákveðinn þannig til þess að veita útgjörðarmönnunum hlunnindi, eins og í lögunum stendur: »styðja innlendan síldarútveg«. Það er því ekki rjett hjá honum, að hjer sjeu höfð nokkur endaskifti. Hjer er ekki farið fram á annað en að þetta komi útgjörðarmönnunum til góða á annan hátt. Eða með öðrum orðum, að vernda þá fyrir ágangi útlendra lögbrjóta. Mjer er spurn um það, hvort nokkuð getur miðað betur til þess að styðja innlendan síldarútveg. Mjer er ekki málið svo kunnugt, að jeg viti glögglega, hvort þessi 10. hluti útflutningsgjaldsins hefir dregið útgjörðarmennina nokkuð til muna. En jeg held hann hafi brytjast svo niður, að enginn teljandi stuðningur hafi að honum orðið fyrir neinn mann. Aftur á móti er mjer kunnugt um, að mjög er kvartað yfir, hve örðugt gangi að fá og krefja inn þetta gjald, sem útgjörðarmeunirnir eiga að greiða til landhelgisvarnanna á móti landssjóðstillaginu. Jeg er því ekki í neinum vafa um, að rjettast hefði verið, að þessi tilhögun, sem nú er farið fram á, að höfð verði framvegis, hefði verið gjörð í upphafi.
Jeg hygg, að það væri rjettara af hv. þm. Ak. (M. K.) að reyna fremur að koma sjer saman við fjárlaganefndina um þetta mál, heldur en að leggja alla áherslu á, að fá þetta mál drepið nú þegar. Jeg skal ekki segja neitt um, hvort samkomulag getur orðið, en ekki er neinu spilt með að því, reyna það, en þó býst jeg við, að fjárlaganefndin haldi fast við aðalatriði frumvarpsins.