16.08.1915
Neðri deild: 34. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (1697)

104. mál, útflutningsgjald

Framsm. fjárlagan. (Pjetur Jónsson):

Jeg skal taka það fram, að jeg sje mjer ekki mögulegt, að leggja það til í nafni nefndarinnar, að málið sje nú tekið út af dagskrá. Nefndin hefir enn ekki hugsað neitt um neinar samkomulagstilraunir, og jeg sje ekki betur, en að hægt sje að reyna slíkt áður en málið kemur til 3. umr., og nægur er tíminn til þess, því fjárlaganefndin hefir oftast fund með sjer á hverjum degi.