17.08.1915
Neðri deild: 35. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (1709)
104. mál, útflutningsgjald
Magnús Kristjánsson:
Jeg hefi áður talað í þessu máli og skal ekki endurtaka það.
Eins og kunnugt er mörgum, sem til þekkja þarna fyrir norðan, þá er eftirlitið þar hvergi nærri nægilegt með einum eftirlitsbát, og því kom fram ósk um það, að fá öðrum bætt við, og að þingið legði í því skyni til meira fje. Nú hefir háttv. fjárlaganefnd ekki sjeð sjer það fært, en í þess stað komið fram með þessa tillögu. Jeg skal nú játa það, að þótt jeg geti frekar gengið að henni en frumv. eins og það var, þá er samt langt frá því, að jeg sje ánægður með hana, en hins vegar treysti jeg því ekki, að frumvarpið verði felt, og vil jeg þá heldur hálfan sigur en algjörðan ósigur.
Það virðist svo, sem fjárlaganefndin hafi í fyrstu ætlast til þess, að auk þeirra 8 þúsund kr., sem hún leggur til að veittar verði í fjárlögunum til landhelgisvarna, gegn 1/3 framlagi annarstaðar að, verði varið í sama skyni úr Fiskveiðasjóði Íslands öllum þeim hluta síldartollsins, sem í Fiskveiðasjóðinn hefir runnið. Þessu er jeg mótfallinn, vegna þess, að þetta fje er ætlað til endurgreiðslu á síldartolli til innlendra manna. En með því að hjer er fram komin miðlunartillaga um, að helmingi af þessu fje verði útbýtt á sama hátt og öðru, mun jeg ganga að því, svo framarlega sem háttv. framsögum. fjárlaganefndar (P. J.) lýsir yfir því, að ekki sje til þess ætlast, að fje verði lagt fram annarstaðar að, móti því, sem varið verður til landhelgisvarna úr Fiskveiðasjóðnum.