23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)

87. mál, lögtak og fjárnám

Framsm. minni hl. (Benedikt Sveinsson) :

Eina og sjest á nefndarálitinu, erum við tveir af nefndarmönnum ekki á sama máli og hinir. Samt þótti okkur ekki taka því, að fara að rita sjerstakt nefndarálit, heldur ætlum að láta okkur nægja, að gjöra grein fyrir skoðun okkar hjer í deildinni, því málið er einfalt.

Við viljum ráða háttv. deild til að fella frumvarpið, því að við álítum það ekki nauðsynlegt, að veita Fríkirkjunni þessa heimild. Yfir höfuð ætti hið opinbera sem minst að skifta sjer af söfnuðunum, hver gjöld þeir greiði o. s. frv. Um þetta var nefndin öll sammála, og af þeirri ástæðu bárum vjer fram frv. til laga um breyting á sóknargjaldalögum, þar sem farið er fram á það; að ekki sje hlutast til um lágmark gjaldanna, og er þá því frekar ástæða til að hlutast ekki til um það, hvernig farið er að ná þeim inn.

Nú eru til hjer á landi margar fríkirkjur, þótt síður sje að kalla þá eina því nafni, sem er jafn »rjetttrúuð« og ríkiskirkjan lútherska, því að auk hennar eru hjer bæði kaþólskir menn og aðventistar, sem kirkju hafa og söfnuð, og með þessu frv., sem hjer liggur fyrir, öðlast þeir einnig þenna rjett. Fer því fjarri, að þeir hafi farið fram á slíkt, svo að hjer er farið að hlutast til um þeirra málefni að þeim fornspurðum, en við teljum ekki rjett að vera að blanda sjer í slíkt. Einnig væri það eins dæmi, að veita »prívat« fjelögum slíkan rjett, sem þann, sem hjer er um að ræða, einkum ef þau standa að einhverju leyti undir umsjón hins opinbera. Það eru ýms fleiri fjelög, sem gjaldkvaðir eiga og háð eru eftirliti stjórnarinnar, og dettur þó engum í hug, að veita þeim lögtaksrjett. Enn fremur teljum við það vera heldur í þvíngunaráttina, ef þetta yrði samþykt, því að við teljum alt slíkt eiga að vera á valdi safnaðanna sjálfra.

Jeg vona því, að frumvarpið falli.