23.08.1915
Neðri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (1722)
87. mál, lögtak og fjárnám
Framsögum. meiri. hl. (Sveinn Björnsson) :
Háttv. framsm. minni hlutana (B. S.) lagði, eins og jeg vissi, aðaláhersluna á það, að Fríkirkjan væri einstakra manna fjelag. En jeg benti á, að þessi fjelög væru að því leyti frábrugðin öðrum, að hið opinbera legði á þau gjaldskyldu, en ekki eins og oftast tíðkast í öðrum fjelögum, að fjelögin leggi þau sjálf á meðlimi sína. Nei, hið opinbera heimtar þetta og sömuleiðis það, að ekki sjeu aðrir, sem stjórni þessum fjelögum, en þeir, sem það löggildir til þess. Jeg veit nú ekki, hvort háttv. þingmaður getur bent mjer á önnur fjelög, hliðstæð þessu.
Þá vildi háttv. þm. (B. S.) láta það skiljast, að þetta væri ekki með þeirra vilja gjört, sem hlut ættu að máli. Út af því skal jeg benda á það, að frv. er fram komið beint eftir ósk fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík, og jeg hygg, að aðrir söfnuðir, sem hlut eiga að máli, vilji það líka gjarna, enda er það ekki of mikið, eins og jeg. benti á áðan, þótt sá rjettur komi á móti skyldunni, sem hið opinbera leggur þeim á herðar.
Háttv. framsm. minni hl. (B. S.) gat þess, að samkomulag hefði verið í nefndinni um frv. um breytingu á sóknargjaldalögunum, og játa jeg að það er rjett, en það snertir ekki þetta mál beinlínis. En þótt svo væri, þá ættu þeir tvímenningarnir einmitt að greiða þessu frv. atkv. til 3, umr. nú, til þess sjá, hvernig hinu reiðir af, ef þeir vilja halda sambandinu á milli þeirra, því að það væri of hart að skera þetta niður, ef hitt yrði ekki samþykt.