19.08.1915
Neðri deild: 37. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)

86. mál, líkbrennsla

Framsm. (Guðm. Hannesson):

Nefndarálitið er stutt, og er það af því, að nefndin hafði lítið sem ekkert við frumv. að athuga. Eina örlitla brtt. hefir nefndin borið fram. Hún er að nokkru leyti orðabreyting, en að öðru leyti á hún að koma í veg fyrir, að deilur verði á milli vandamanna hina látna.

Þegar nefndin ræddi um kirkjugarðsmálið, kom það til tals, að nefndin flytti frumv. um líkbrenslu. En að hún gjörði það ekki, kom af því, að hún taldi litlar líkur til, að einstakir menn mundu fyrst um sinn hefjast handa í þessu máli, eins og víðast hvar hefir orðið ytra, þar sem þetta er komið á rekspöl. En úr því að einhver von er um, að einstakir menn slái sjer saman, til þess að koma þessu fyrirtæki á fót, þá þykir nefndinni gott, að frumv. er komið fram, og leggur því til, að það verði samþykt.