06.09.1915
Neðri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (1765)

138. mál, verkfall opinberra starfsmanna

Ráðherra:

Þetta frumvarp var borið fram í efri deild af 4 þingmönnum, og samþykt þar, með einum viðauka, með 12 atkvæðum gegn 1 að viðhöfðu nafnakalli.

Jeg býst ekki við, að jeg þurfi að mæla mörgum orðum með frumvarpinu. Jeg tel sjálfsagt, að enginn neiti því, að þörf sje á lögum um þetta efni, eftir þá atburði, sem hjer hafa gjörst.

Í öðrum löndum eru lög sett um þetta efni, t. d. á Frakklandi, og þar lagt tveggja mánaða fangelsi við sams konar samtökum og talað er um í þessu frumvarpi: 144. gr. hegningarlaganna kann að ná til verkfalls, en vafasamt, hvernig dómstólarnir mundu líta á það mál, sjerstaklega þar sem löggjafinn mun ekki hafa haft þess konar tilfelli í huga.

Þar sem nú er áliðið þingtímans og mig væntir, að menn játi, að nauðsyn sje á lögum um þetta efni, þá vona jeg, að deildin láti frumvarpið ná fram að ganga nefndarlaust eins og Ed.