07.09.1915
Neðri deild: 53. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)
138. mál, verkfall opinberra starfsmanna
Bjarni Jónsson:
Jeg tel lög þessi mjög nauðsynleg, og þinginu skylt að sjá um, að verkamenn geti ekki algjörlega sett vinnuveitendum stólinn fyrir dyrnar og heft með því framkvæmdir og ónýtt unnið verk. En lögin geta verið of hörð. Jeg tel það ákvæði ranglátt í frumvarpinu, sem meinar verkamönnum að krefjast uppbótar á kaupgjaldi sínu, meinar þeim það, nema því að eins, að þeir í auðmýkt snúi sjer til vinnuveitanda. Það þarf ekki svona hörð lög. Það má nærri geta, að vinnuveitendur sinna engum kröfum um kauphækkun, þegar þeir hafa svona ströng lög að baki sjer. Það er ekki nema sanngjarnt og sjálfsagt, að þetta fólk geti átt tal við yfirboðara sína og hatt einhverja von um árangur. Hagur lands og þjóðar er trygður með breytingartillögunni frá okkur á þgskj. 795, og byrjar svo »Á undan 1. gr. komi ný grein, sem verði 1. gr. o. s. frv.«. Eins og sjest á þessari brtt., sem komið hefir áður fram í Ed., þá er svo ætlast til, að gjörðardómur skeri úr ágreiningi, sem verða kann, á milli starfsmanna og vinnuveitanda, og þegar starfmennirnir skipa einn dómara og vinnuveitandi annan og landsyfirdómur þann þriðja, þá get jeg ekki betur sjeð en hagur landsins sje fullkomlega trygður. Jeg álít að lögin verði nógu ströng með þessu, og vernda þar að auki landið gegn fyrirvaralausri uppsögn einn góðan veðurdag. Menn segja ekki upp vinnu, nema allar leiðir sjeu lokaðar. En ef svo er, þá geta allir starfsmenn bundist samtökum um að hætta vinnu kl. 12 á hádegi. Það er ekki verkfall að segja upp vinnu, slíkt er öllum heimilt, nema samningar sjeu um einhvern ákveðinn tíma. Í stað verkfalls gætu allir sagt upp, og frumv. byrgir ekki þann brunn.
Um sektir þær, sem talað er um í 1. gr. frumv., sem verður 2. gr. samkv. brtt. okkar, þá er það að segja, að þær eru alt of háar. Það virðist hæfilegt, að þær væru 100–1000, en ekki 500– 5000 kr.
Verkfall er hlutur, sem ekki er óþektur í heiminum, og er heldur ekki talinn neinn glæpur. Starfsmenn við járnbrautir á Frakklandi, sem eru landsins eign, gjörðu verkfall í vetur, og stjórnin hafði ekki önnur ráð en að kalla þá í herinn, og skylda þá sem hermenn að halda áfram starfi sínu.
Jeg sje ekki ástæðu til að gjöra meira í þessu máli. Ríður á að tryggja landið gegn verkföllum opinberra starfamanna þess, og það er trygt með frumvarpinu, og þó enn betur með tillögu okkar.
Mæli jeg með því, að samþykt verði frv. þetta með brtt., sem við berum fram, sem gjöra frumv. bæði mannúðlegra og aðgengilegra til fylgis og framkvæmda og heppilegra til úrslita.