17.07.1915
Efri deild: 9. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

18. mál, útflutningsbann á breskum vörum

Framsögumaður (Steingr. Jónsson) :

Eins og háttv. þingdeildarmönnum er kunnugt, hefir verið mjög örðugt að fá vörur frá útlöndum síðan að Norðurálfustyrjöldin byrjaði, og hefir á Englandi oftast þurft að fá sjerstakt stjórnarleyfi, til þess að þaðan mætti flytja vörur hingað. Þetta hefir sumpart verið af því, að Englendingar hafa óttast þurð á vörum þessum, og sumpart af því, að þeir hafa viljað hafa eftirlit með því, hvert vörurnar færu. En þetta hefir gjört erfið viðskifti við England og verið oss oft bagalegt.

Það mun hafa verið eftir bendingu bretska ræðismannsins hjer, að stjórnin gaf út bráðabirgðalög um þetta efni 19. júní síðastliðinn, þar sem bannaður er útflutningur af nýju á öllum vörum, er hingað flytjast frá Bretlandi, og er orsökin til þess tæplega önnur en sú, að Englendingar hafa óttast, að vörur þær, er fluttar yrðu hingað, yrðu aftur fluttar hjeðan til óvinalanda sinna, einkum Þýskalands. Jeg hygg að það hafi verið heppilegt og rjett af stjórninni, að setja bráðabirgðalögin frá 19. f. m., en þá er það eins heppilegt og gagnlegt, að þeim sje haldið áfram í gildi og þau sjeu samþykt hjer á Alþingi. Það er ekkert útlit fyrir að styrjöldin ætli að hætta bráðlega, eða að eftirleiðis verði hægra að fá vörur en verið hefir til þessa; telur því nefndin sjálfsagt að samþykkja frumv. í öllum aðalatriðunum.

Nokkrar smábreytingar hefir nefndin þó gjört við frumv., og hefir hún talað um þær við hæstv. ráðherra, er hefir tjáð sig þeim samþykkan.

Brtt, þessar eru á þgskj. 39.

Fyrsta brtt. er um að setja „Bretlandseyjum“ í staðinn fyrir „Bretlandi“ í 1. gr. frumv., og er það vegna þess, að nefndinni þykir rjett, að lög þessi nái til allra vara, sem fluttar eru hingað, hvaðan sem er frá Bretlandseyjum, t. d. að það nái til þess, ef hveitifarmur væri fluttur hingað frá Írlandi eða Hjaltlandi.

Þá er önnur tillagan. Eftir frumv. má að eins birgja upp með þessar vörur íslensk fiskiskip, en nefndin finnur ekki ástæðu til þess, að binda þetta við íslensk fiskiskip, heldur megi einnig byrgja upp með vörur þessar þau erlend fiskiskip, er leggja hjer upp afla sinn. Nær þetta einkum til norsku síldarskipanna við Norðurland, og erlendra botnvörpuskipa hjer við Suðurland. Eftir tillögu nefndarinnar kemur 2. málsgrein 1. greinar til að hljóða svo:

„Þó er heimilt að birgja upp skip, er siglir frá Íslandi, til næstu erlendrar hafnar, sem það ætlar að koma, á svo og fiskiskip meðan þau stunda fiskveiðar við Ísland og leggja hjer upp afla sinn“.

Loks er 3. brtt. nefndarinnar um sektirnar. Þær eru alt of lágar í frumvarpinu. Raunar má búast við, að þeim verði ekki oft beitt, ef það yfir höfuð kemur fyrir. En ef sá ótti, er hefir komið málinu af stað, reynist rjettur, þá eru 1000 kr. sektir fyrir að flytja út miklar vörur allt of lítið; það má alls ekki vera minna en 5000 kr., eina og nefndin leggur til.

Að síðustu hefir nefndin lagt til, að fyrirsögn frumv. verði breytt, og er það gert í samræmi við fyrstu brtt. nefndarinnar, ef hún verður samþykt.

Hæstv. ráðherra hefir bent nefndinni á, hvort ekki væri rjett að fella aftan af 2. gr., er nú hljóðar svo :

„Sams konar útflutningsbann og getur um í 1. gr., er stjórnarráði Íslands heimilt að leggja með reglugjörð á vörur, sem til Íslands flytjast frá öðrum löndum, ef það telur hættu á, að ella taki að einhverju leyti eða öllu fyrir vöruflutning frá þeim löndum til Íslands“.

Vill hæstv. ráðherra fella aftan af greininni, svo, að 2. gr. heimili stjórninni, að leggja sama bann á gagnvart öðrum löndum, þótt eigi sje hætta á, að útflutningur frá þeim löndum verði bannaður til Íslands, og yrði það þá eins og lög frá 3. ágúst í á. væru tekin þar upp. Nefndin hefir ekki rætt þetta atriði, en mun athuga það til 3. umr. og þá ef til vill gjöra brtt. í þessa átt.

Jeg leyfi mjer svo nefndarinnar vegna að leggja til, að frumv. verði samþ. með breytingum þeim, sem skráðar eru á þgskj. 39.