31.08.1915
Neðri deild: 47. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)

58. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands

Sveinn Björnsson:

Háttv. fram. stigum. (S. E.) gat um, að ágreiningur hefði um það orðið í nefndinni, hvort ýta skyldi undir stjórnina eða ekki, með það að láta reisa loftskeytastöð. Eftir því sem mjer hefir skilist á nefndarálitinu, þá hefir þetta hik stafað af því, hve mikið öll tæki og áhöld væru dýrari nú en fyrir ófriðinn.

Hæstvirtur ráðherra gaf þær upplýsingar við fyrirspurnina um daginn, að kostnaðarmunurinn nú og þá væri hjer um bil 10%. (Pjetur Jónsson: 10–15%). Jeg hefi fengið upplýsingar síðan, að það muni liggja nær 1.0%. Jeg vildi nú óska, ef ekki liggja aðrar ástæður fyrir þessu hiki nefndarinnar, að hún vildi falla frá því hiki, og hvetja stjórnina til þess, að koma upp þessar stöð sem fyrst. Jeg er raunar algjörlega samdóma þeim, er álíta, að hjer eigi að reisa stóra stöð. En á því eru allmikil vandkvæði sem stendur, eins og hæstv. ráðherra hefir þegar skýrt frá. Og ef farið er að meta mannslífin til peninga, eins og svo oft er gjört hjer í háttv. deild, þá gæti sú upphæð, er sparaðist í mannslífum, margborgað þann kostnað, er leiddi af að reisa stöðina, svo að engan veginn væri forsvaranlegt, að leggjast það undir höfuð. En væri nú þessi litla stöð bygð, þá ætti að útbúa hana svo, að stækka mætti síðar.

Jeg vona sem sagt, að menn láti ekki kostnaðaraukann vaxa sjer í augum, en skori á stjórnina, að láta reisa stöðina sem allra fyrst.